Fyrrverandi glamúrfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Katie Price hefur vísað því alfarið á bug að til sé kynlífsmyndband af henni og eiginmanni hennar, Lee Andrews.
Breska götublaðið The Sun greindi frá því að Lee hefði viðrað hugmyndir þess efnis að selja slíkt efni fyrir allt að 250 þúsund pund, jafnvirði um 43 milljóna íslenskra króna.
Samkvæmt umfjöllun miðlanna á Lee, sem er 43 ára gamall og situr nú í fangelsi í Dúbaí vegna meintra svikamála, að hafa rætt við vin sinn í hljóðskilaboðum um að selja myndband sem hann sagði vera af sér og eiginkonu sinni.
Í hljóðskilaboðunum á hann meðal annars að hafa sagt að hann þyrfti að afla fjár fljótt og að myndbandið gæti skilað honum „250 þúsund pundum“. Hann á jafnframt að hafa nefnt fyrirtækið Vivid Entertainment sem kom við sögu þegar kynlífsmyndbönd af Kim Kardashian og Pamelu Anderson fóru í dreifingu.
Þegar Lee var hins vegar bent á að ólöglegt væri að dreifa slíku efni án samþykkis Katie Price á hann að hafa dregið orð sín til baka og sagt að hann hefði aðeins verið að grínast.
Samkvæmt fréttunum sagðist hann þess í stað ætla að halda sig við efni sem þau kynnu að birta á OnlyFans.
Price hefur brugðist harðlega við fréttaflutningnum og segir fullyrðingarnar algjörlega rangar.
„Þessi saga er algjörlega ósönn. Ég hef aldrei tekið upp slíkt myndband og allar fullyrðingar um annað eru rangar og afar villandi,“ sagði hún í yfirlýsingu.
Hún sagði jafnframt að umrædd hljóðskilaboð snerust um myndband sem „er ekki til og mun aldrei verða til.“
Málið bætist við langan lista vandræða sem hafa dunið yfir Lee Andrews undanfarna mánuði. Hann var látinn laus úr Al Awir-fangelsinu í Dúbaí fyrir um mánuði en var handtekinn á ný í síðustu viku. Hann hefur neitað staðfastlega öllum ásökunum um svik sem komið hafa fram gegn honum.
Daily Mail hefur eftir heimildum sínum að Price sé orðin langþreytt á vandræðunum í kringum Lee og hún hafi verið hvött af vinum sínum til að binda enda á hjónabandið.