Hálfleikssýning úrslitaleiks Heimsmeistaramótsins í fótbolta sem fram fór í gær var stjörnum prýdd. Sýningin sundraði áhorfendum þegar kom að gagnrýni á hana og lýsa sumir henni sem óspennandi og ruglingslegu „rusli“.
Chris Martin, söngvari Coldplay, stýrði hálfleikssýningunni á MetLife-leikvanginum í East Rutherford í New Jersey, Heildarsamsetningin reyndist vera slæm blanda af orku, undarlegum umskiptum og almennri tilfinningu fyrir sundrungu, eins og PageSix lýsir.
Þegar Wayne Rooney,enski knattspyrnumaðurinn, var spurður í beinni útsendingu frá BBC Sport hvað honum fyndist um þáttinn, sagði hann: „Mér líkar vel við marga af þessum listamönnum, en mér fannst þetta bara bull.“
Madonna steig fyrst á svið og mæmaði við lag sitt Music frá árinu 2000 á meðan dansarar á hjólaskautum dönsuðu í hringi um hana, síðan gekk hún á dramatískan hátt út úr göngum og út á völlinn. Flutningur hennar breyttist í undarlegan flutning Prúðuleikara á lagi White Stipes, Seven Nation Army.
Suður-kóreska sveitin BTS flutti síðan lagið Dynamite á látlausan en kraftmikinn hátt, áður en Jason Sudeikis birtist óvænt sem ástkær persóna hans, Ted Lasso, til að kynna Justin Bieber á svið. Bieber hægði verulega á partýinu og söng lag sitt Everything Hallelujah á meðan hann spilaði á gítar.
Shakira steig þá á svið með Burna Boy til að syngja Dai Dai, hristi mjaðmirnar og vakti áhorfendur aftur. Að lokum steig Coldplay einnig á svið ásamt Gustavo Dudamel og PS22 Chorus, vinsælum kór 4. og 5. bekkinga frá New York, til að ljúka sýningunni. Börnin voru öll í litríkum treyjum og dönsuðu af krafti á meðan lagið Love með hnött var stafsett á vellinum, sem vakti góðar tilfinningar.
Sumir áhorfendur gagnrýndu sýninguna harkalega á X og ein athugasemd gaf frammistöðunni fimm af tíu.
„Madonna, Bieber og krakkarnir í lokin hefðu mátt klippa út. 90% af Madonna virðist vera tekið upp fyrir fram. Lagaval Biebers var slæmt. Frá spennu til að vilja blunda til að vera spennt. Ég skil skilaboðin með hálfleikssýningunni en í alvöru. Hefði bara átt að vera BTS og Shakira.“
„Að horfa á hálfleikssýninguna frá HM gerði mig orðlausan. Fótboltinn var skemmtunin. Hálfleikssýningin var menningarleg niðurlæging. Sársaukafullt og innantómt. Sirkus.“
Enn annar áhorfandi kallaði sýninguna „sundurleita“ , sem og „þemalega út um allt og í raun bara skortir alla framtíðarsýn.“
Sýningin markaði fyrstu hálfleikssýninguna í sögu HM í knattspyrnu. Stjörnusýningin studdi FIFA Global Citizen Education Fund, verkefni sem miðar að því að safna 100 milljónum dala til að auka aðgengi að gæðamenntun og fótbolta fyrir börn um allan heim. Menntasjóðurinn hefur þegar safnað yfir 50 milljónum dala og 1 dalur af hverjum seldum miða á leiki HM 2026 var gefinn á meðan mótið stóð yfir.
Martin tilkynnti um sýninguna í maí með myndbandi með Sesame Street persónunum Elmo og Cookie Monster, sem og Kermit, Miss Piggy og Animal úr Prúðuleikurunum. Í myndbandinu mátti sjá Martin og Elmo spyrja BTS meðlimina Jin, Suga, J-Hope, RM, Jimin, V og Jung Kook í gegnum FaceTime hvort þeir vildu taka þátt í sýningunni í hálfleik.
„Þetta er tækifæri til að sýna hversu magnaðar allar tegundir manneskja eru,“ segir Martin í hjartnæma myndbandinu. „Þessi þáttur snýst meira um við en mig,“ segir hann síðar. „Ég meina, hann snýst í raun um samveru.“
Þeir sem misstu af sýningunni eða vilja horfa á hana aftur geta horft á hana hér.