Dóttir leikarans Charlie Sheen, Sami Sheen, hafnar sögusögnum um að frægur faðir hennar fjármagni lúxuslíf hennar og þakkar OnlyFans fyrir velgengni sína.
„Sjáðu til, ef ég ætti peningana hans pabba, þá myndi ég gangast við því. Ég myndi láta ykkur vita,“ sagði hún í TikTok myndbandi á laugardaginn í svari við athugasemd um að faðir hennar sæi henni farborða.
„Þessar athugasemdir gera mig svo pirraða því þessi maður hefur ekki gefið mér krónu í meira en fjögur ár. Ég hef séð fyrir mér að fullu síðan ég var 18 ára..“
Sami, 22 ára, útskýrði að hún hefði frétt að faðir hennar hefði staðgreitt bíl handa systur hennar, Lolu, 21 árs, og bætti við að hann hefði borgað „helvíti mikið af peningum“.
„Svo ég spurði hvort hann gæti keypt hest handa mér á sama verði, og það var síðasta skipti sem við töluðum saman, og það var fyrir nokkrum vikum,“ hélt hún áfram. „Svo ef það setur ekki í samhengi að pabbi minn hjálpar mér ekki með neitt, þá veit ég ekki hvað gerir það.“
„Pabbi minn keypti ekki strandhúsið handa mér,“ sagði hún um nýja húsið sem hún keypti nýlega. „Þessi brjóst keyptu húsið,“ sagði Sami og greip um brjóst sín, „svo vertu áskrifandi.“
@samisheen Replying to @user3404962211197 ♬ original sound - sami sheen
Charlie á Sami og Lolu með fyrrverandi eiginkonu sinni Denise Richards, sem hann var giftur frá 2002 til 2006.
Sami neyddist til að ávarpa gagnrýnendur eftir að hafa státað af strandhúsi sínu í TikTok-myndbandi sem birt var um helgina. Í myndbandinu sýndi hún tómt hús sitt, sem er steinsnar frá sjónum, og útskýrði áform sín um innréttingar.
Í febrúar árið 2025 var greint frá því að Sami mun hafa þénað yfir þrjár milljónir dala á þremur árum síðan hún stofnaði OnlyFans reikning sinn. Faðir hennar hefur tjáð opinberlega að hann styðji ekki starfsval dóttur sinnar og sagði árið 2022 að Richards hefði leyft því að gerast.
„Ég hvatti hana til að halda þessu stílhreinu, skapandi og ekki fórna heiðarleika sínum,“ sagði Richards.
Samband feðginanna hefur verið stirt og fullyrti sami í apríl 2025 að hún myndi „frekar gera bókstaflega hvað sem er annað en að fara í hádegismat með pabba“.