Þrjátíu og níu ára karlmaður leitaði til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, vegna blautra drauma um tengdamóður sína.
Maðurinn hefur verið kvæntur eiginkonu sinni, sem er 34 ára, í fimm ár og hefur sambandið heilt yfir gengið vel.
„En nánast í hvert skipti sem við stundum kynlíf hugsa ég um móður hennar – sem að mínu mati er fallegri en dóttir hennar,” segir maðurinn í erindi sínu.
Dreymir um hana
„Móðir hennar er 53 ára en lítur út fyrir að vera á mínum aldri. Hún hreyfir sig stöðugt og er með ótrúlega vel mótaðan líkama. Ég heillaðist af henni um leið og ég sá hana í fyrsta sinn,“ segir maðurinn sem rifjar upp þeirra fyrstu kynni fyrir nokkrum árum.
„Ég fór heim til fjölskyldu hennar í sunnudagsmat til að kynnast þeim og hún opnaði dyrnar í þröngum kjól sem sýndi vel lögulegan líkama hennar. Hún var þegar örlítið við skál og tók á móti mér með innilegu faðmlagi. Þegar hún faðmaði mig þrýstust stór og stinn brjóst hennar upp að bringunni á mér. Það eina sem mig langaði til var að komast einn með henni afsíðis og njóta ásta með henni af ástríðu.”
Maðurinn segir að eiginkona hans hafi ekki hugmynd um að hann laðist að móður hennar. Hún hafi hins vegar haft orð á því að þegar hún var í skóla hafi margir skólafélagar hennar verið skotnir í mömmu hennar.
Maðurinn segir að eiginkona hans sé nokkuð opinská þegar kemur að kynlífi og hafi áður nefnt þá hugmynd að prófa með honum svokallaðan trekant. „Heldurðu að hún væri tilbúin að kanna þann möguleika með móður sinni? Ég get varla ímyndað mér neitt meira spennandi,“ spyr maðurinn vongóður.
Ráðgjafinn svarar
Það er skemmst frá því að segja að ráðgjafi The Sun telur hugmyndina fráleita.
„Alls ekki. Það getur vissulega verið örvandi fyrir pör að ræða hugmyndina um trekant. En ef þið mynduð láta þessa tilteknu fantasíu verða að veruleika – eða jafnvel nefna hana – myndi það að öllum líkindum splundra fjölskyldunni. Eiginkona þín yrði líklega miður sín ef hún kæmist að því hversu sterkt þú laðast að móður hennar.
Hún yrði einnig sár ef hún vissi hversu oft þú ímyndar þér að þú sért að njóta ásta með móður hennar í stað hennar sjálfrar. Það væru tvöföld svik.
Ef þú ert óhamingjusamur í hjónabandinu skaltu ræða það við eiginkonu þína, vinna að sambandinu og reyna að styrkja það sem þið eigið saman.”