Stjörnublaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson opnar sig um neyðarleg mistök sem honum varð á í gær.
„Í gær urðu mér á stærstu mistök á blaðamennskuferlinum frá upphafi vega og mér er það ljúft og skylt að viðurkenna þau hér og biðjast afsökunar af auðmýkt,“ segir Atli Steinn í færslu á Facebook.
Í viðtali sem birtist í morgun og hefur verið leiðrétt á vef MBL ræddi Atli Steinn við Lúðvík Þór Blöndal um það sem Atli Steinn hélt vera frá brunanum í Drammen í Noregi. Lúðvík hafði sent Atla myndir frá vettvangi bruna og í ljósi þess hvað bruninn í Noregi er svakalegur taldi Atli að myndirnar væru þaðan.
„Hann var bara ekki í staddur í Drammen, hann var í Sørvági í Færeyjum þar sem stórtjón varð einnig í bruna um helgina,“ segir Atli Steinn.
„Við Lúðvík ræddum saman í tíu mínútur og gengum þess báðir algjörlega duldir að ég taldi mig vera að hlusta á frásögn frá Drammen á meðan hann sagði mér af bruna í Færeyjum þar sem fólk á ekki síður um sárt að binda auðvitað og bið ég hvort tveggja Færeyinga og íbúa Drammen í Noregi innilega afsökunar auk allra lesenda Morgunblaðsins og mbl.is sem í morgun lásu um bruna sem var allt annars staðar á Norðurlöndum.“