Fókus

19 ára sonur Britney rýfur þögnina vegna sögusagna um að hún sé klónuð

Mynd
Britney Spears.

Jayden James Federline, 19 ára, sonur poppstjörnunnar Britney Spears og fyrrum eigin,anns hennar, Kevin Federline, tók nýlega þátt í beinni útsendingu á TikTok og svaraði spurningum aðdáenda, og það var ein sem birtist sérstaklega.

„Klónakenningin“ fór á kreik á samfélagsmiðlum eftir að Britney byrjaði að birta dansmyndbönd sín á Instagram. Margir sögðu að „róttækar“ breytingar hefðu orðið á útliti hennar og einnig að munur væri á rödd hennar eða dansstíl. Margir sögðu þá að „hinni raunverulegu Britney“ hefði verið skipt út fyrir klón.

Einn aðdáandi spurði Jayden hvort honum fyndist það „kjánalegt“ þegar fólk dreifir sögusögnum um hann og fjölskyldu hans, þar á meðal „klónakenningunum“.

„Ég fer inn á TikTok og sé þetta eina myndband sem hefur fengið 1,2 milljónir læka og myndatextinn er eitthvað á þá leið: „Stærsta kenning allra tíma: Er Britney Spears enn á lífi?““  sagði Jayden. „Í alvöru þú getur farið inn á síðuna hennar og séð hana núna. Eruð þið ekki í lagi?“ spurði hann.

Hann hélt síðan áfram að segja að „margt af því sem kemur fram í fjölmiðlum væri ýkt og falsað“. „Fólk veit hversu auðtrúa fólk er og það notar það sér í hag,“ hélt hann fram. „Ef það fær mörg „læk“ þá trúir fólk því.“

Jayden sagði einnig að „fólk rannsaki ekki einu sinni“ það sem það sér á netinu og trúi því bara strax.

Mynd
Jayden gekk nýlega á tískuvikunni í París. Mynd: Getty.

Spears og Kevin Federline voru gift á árunum 2004 til 2007 og eignuðust tvo syni saman á meðan sambandi þeirra stóð. Vegna persónulegra erfiðleika söngkonunnar fékk Federline fulla forsjá yfir sonunum árið 2008.

Á jóladag 2024 afhjúpaði Spears að hún hefði sameinast Jayden á ný „í fyrsta skipti í tvö ár“.

„Bestu jól lífs míns!!! Ég hef ekki séð strákana mína í tvö ár!!!“ skrifaði hún í myndatexta við Instagram- færslu með syni sínum. „Gleðitár og bókstaflega í sjokki á hverjum degi, svo ástfangin og blessuð!!! Ég er orðlaus, takk Jesús!!!“

Samband þeirra virðist nú sterkara en nokkru sinni fyrr, sem og fyrirsætuferill bræðranna. Þeir stigu á tískupallana í fyrsta skipti á tískuvikunni í París fyrr í þessum mánuði þegar þau gengu saman á Vetements Menswear vor/sumar 2027 sýningunni.