Fjórða barnið hefur nú slegist í hópinn hjá listaparinu Þórdísi Björku Þorfinnsdóttur og Júlí Heiðari Halldórssyni. Það er Júlí sem greinir frá gleðitíðindunum á Facebook en þar segir hann að dóttirin hafi komið í heiminn eldsnemma morguns þann 14. júlí. Móður og barni heilsast vel og í reynd svo vel að Þórdís mætti í brúðkaup í gær.
„Lítil stúlka með bollukinnar og svart hár mætti í heiminn kl. 05:01 þann 14. júlí. Móður og dóttur heilsast vel. Svo vel að hún Dísa mín mætti galvösk í brúðkaup í gær. Ekki allar hetjur þurfa skikkju en ég ákvað samt að panta eina af Temu fyrir hana Dísu mína. Hún bar sig vel eins og naglinn sem hún er og henti í brandara þegar hausinn stóð hálfur út í fæðingarstofunni. Nú er bara að njóta.“
Fókus sendir fjölskyldunni hamingjuóskir.