Bandaríska tónlistarkonan Kesha hefur sagt frá því hvernig hún endaði með krukkur fullar af mannatönnum dreifðar um húsið hjá sér g grínast með ástæðuna fyrir því að hún geymir þær til sýnis.
Á miðvikudaginn 15. júlí sagði Kesha í hlaðvarpinu Las Culturistas að hún hefði einhvern veginn endað á því að „safna tönnum“ þegar hún varð heltekin af aðdáendum sínum.
Hún sagði: „Einhver sagði: „Barnið mitt missti tennurnar sínar,“ og ég spurðii: „Má ég fá þær?“ Ég bjó til hálsmen, eyrnalokk, belti og svo kórónu. Krónan er geggjuð.“
Kesha segist að mestu skírlíf og ekki upptekin af því að karlar reyni við hana. Hún hélt áfram:
„Svo byrjaði ég bara að safna þeim vegna þess að þetta hræðir gagnkynhneigða karla svolítið. Ég setti þær við dyrnar ... ég safna manna tönnum. Ég byrjaði bara að setja þær út um allt heimilið mitt ... Í litlum krukkum.“
Kesha velti upp hvað fólk geri við tennurnar sem börn þeirra missa. „Sturtið þið þeim niður í klósettið? Hvert eru þær að fara? Gefðu mér þær ... Má ég fá tennurnar þínar, vinsamlegast? Þetta er ekki æfing, ekki grín. Ég er poppstjarna og ég þarf á tönnunum þínum að halda.“