Fókus

Róbert með ráð fyrir útileguna og varar við algengum mistökum Íslendinga: „Þetta getur verið leikjabreytir fyrir marga“

Mynd
Róbert Marshall. Samsett mynd/Reykjavíkurborg/Getty

Margir Íslendingar hyggja á útilegu í sumar, bæði til að njóta nærveru við náttúruna og til að fá gott veður. Fjallaleiðsögumaðurinn Róbert Marshall, sem flestir þekkja reyndar af sínum pólitísku leiðöngrum, var mættur í þáttinn Fram undan á Rás 2 til að ræða um útileguráð en hann gistir oft í tjaldi.

Hann segir að fyrsta skref sé að velja landshlutann eftir veðri. „Þetta er búið að vera þannig sumar að það er búið að vera heppilegt veður um helgar, hist vel á,“ segir hann. „Fólk áttar sig ekki alveg á því að það er ekki alveg sama veðrið allan daginn. Ef þú stúderar svolítið veður.is, minn uppáhaldsvefur, þá getur þú alltaf fundið glugga af góðu veðri. Fara inn í veðurþáttaspánna, vera þar en ekki bara krakkakortið hvernig á að vera klæddur þennan dag. Það er hægt að fara dýpra í þetta.“ 

Hugsa út fyrir boxið

Róbert hvetur landsmenn til að fara á aðra staði en hefðbundin tjaldsvæði.

„Ekki keyra á milli tjaldstæða. Það er ágætt út af fyrir sig en það þreytt. Bara stúdera kortin og velja á þessu landsvæði sem þú ætlar að dvelja á og velja tvo þrjá möguleika út frá víkum, dölum, einhverjum eyðibýlum og vera óhrædd við að vera frumleg að velja sinn stað. Með flottu útsýni, þar sem er gaman og sitja og grilla,“ segir hann.

„Íslendingar eru alltaf fastir í því að þurfa að tjalda á einhverjum sléttum grasfleti. Tjöld eru frábær á sandi, á melum, á möl. Ég er tjaldandi allan ársins hring uppi á einhverjum jöklum. Þetta er bara spurning um undirlag.“

Það má alveg hugsa út fyrir boxið. „Einhver flottustu tjaldstæði sem ég hef verið á er á stöndum, einhversstaðar við sjóinn,“ segir hann. „Ég hvet fólk til að hugsa út fyrir boxið.“

Liggur eins og Michelinmaður og skelfur

Róbert er með ýmis ráð sem margir geta nýtt sér fyrir útileguna.

„Mikilvægast er fyrir góða útilegu er að vera með góða dýnu og góðan svefnpoka. Það er minning margra úr æsku eru lélegar dýnur og hræðilegir svefnpokar og næturkuldi,“ segir hann.

„Fólk kannski dúðar sig upp, fer í öll lögin og fer svo ofan í fermingarsvefnpokann sinn. Svo liggur það eins og Michelinmaður og skelfur. Svefnpokarnir virka þannig að þú ferð ofan í þá, rennir upp og loftið í kringum þig, alveg eins og lögin í fötunum, hitnar. Ef þú ert í öllum lögunum þínum þá verður þér ekkert heitt. Það þarf hugsa fyrir því.“ 

Leggur hann til að hita sér vatn í harðan brúsa og nota hann til að hita upp svefnpokann áður maður fer að sofa. „Þetta getur verið leikjabreytir fyrir marga.“

Það tjald sem hann notar hvað mest hafi ekki kostað mjög mikið. Það sé í fínu lagi að fá lánaðan búnað eða kaupa hann notaðan. Var hann spurður út í helstu mistökin sem fólk gerir. „Stóru mistökin er að fólk kaupir sér ekki miðað við notkun. Kaupir sér mörghundruðþúsundkróna þaktjald sem er notað einu sinni á ári. Af hverju? Heldurðu að íslenski heimskautarefurinn muni éta á þér andlitið á meðan þú sefur?“