Leikkonan og spjallþáttastjórnandinn Rosie O’Donnell opnar sig um andlát Michelle Trachtenberg í viðtali við Variety. Þær léku saman í myndinni Harriet the Spy og héldu þær sambandi fram að andláti Michelle.
Michelle fannst látin, aðeins 39 ára, í íbúð sinni í New York í febrúar í fyrra. Hún var hvað þekktust fyrir að leika í vinsælu sjónvarpsþáttunum Gossip Girl og Buffy the Vampire Slayer auk hlutverks í kvikmyndum á borð við EuroTrip og Inspector Gadget. Opinber dánarorsök hennar er fylgikvillar af sykursýki sem tengjast mögulega lifrarígræðslu sem hún fór í árinu áður, fjölskyldan hennar hafnaði krufningu af trúarlegum ástæðum.
Mætti aldrei
Rosie segir að sem barnastjarna hafi Michelle verið framúrskarandi, ekki átt í neinum erfiðleikum með að muna texta og átt auðvelt með að spinna.
„Hún átti mjög ástríka fjölskyldu en svo leitaði hún í fíkniefni og áfengi, ég held að þá hafi ég aðeins misst sambandið við hana. Á síðustu árunum, þegar hún var í slæmum málum, þá hringdi hún stundum í mig og við spjölluðum,“ segir Rosie.
„Ég hringdi líka í mömmu hennar til að komast að hvað væri í gangi með hana, hún sagði mér það og hvað það var lengi. Við vorum búnar að mæla okkur mót þrisvar eða fjórum sinnum en hún mætti aldrei – á veitingahúsi og líka heima þegar ég var búin að elda.“
Rosie hringdi þá í Michelle sem var þá búin að gleyma hvaða dag hún átti að koma. „Hún var ekki í góðum málum. Ég hélt að hún myndi ekki deyja. Með flesta sem þjást af fíknisjúkdóm þá telja ástvinir að þau muni lifa en það er hægt að deyja úr því og það gerist svo oft að það þarf að taka því alvarlega.“
Minnti á aðstæður Whitney Houston
Rosie er full eftirsjá. „Ég vildi að ég hefði gert meira. Ég reyndi að hjálpa henni eins mikið og ég gat en það var ekkert hægt að ná sambandi við hana undir lokið, það var sorglegt. Þetta minnti mig á Whitney Houston þar sem allir vissu hvað var í gangi en enginn vildi segja neitt.“