Eins og aðallega höfuðborgarbúar hafa orðið varir við haustaði snemma í ár. Í miðjum júlí er staðan þannig að ég loka öllum gluggum heima, kveiki á ofnum og kertum, finn til lopasokka og planta mér undir teppi upp í sófa. Síðan efast ég enn á ný um tilveruna og af hverju foreldrar mínir gerðu mér þann grikk að fæðast hérlendis en ekki á Tenerife!
Komin með músina á heimasíður ferðaskrifstofa man ég það að á breytingarskeiði og löngu fyrir það þrífst ég illa í svakalega miklum hita. 27 gráðurnar á Costa del sol í apríl síðastliðnum voru bara fínar, svona í skugga.
Við næsta smell datt ég svo rakleitt niður í kanínuholuna líkt og Lísa í Undralandi þegar ég smellti á færslu í Facebook-hópnum Bókagull - umræða um góðar bækur sem kynnti mig fyrir Murdoku. Þvílík snilld, af hverju var enginn búinn að segja mér frá þessu fyrr ?
Ég elska ráðgátur, glæpasögur sem flestar snúast um að leysa ráðgátu, spil og hugaráskoranir. Þarna sameinast þetta allt.
Hvað er Murdoku?
Ef þú kannast við hina japönsku Sudoku þá ertu komin hálfa leið. Sudoku er talnaþraut með 9x9 borði sem samanstendur af 9 kössum og fara 9 tölur í hvern kassa. Tölurnar 1-9 eiga að raðast saman. Hver tala má bara vera einu sinni í hverjum kassa, einu sinni í hverri röð lárétt og einu sinni í hverri röð lóðrétt.
Murdoku er hönnun Manuel Garand, sem er kanadískur og búsettur í Montreal. Í Murdoku sameinar hann morðgátu og Sudoku. Borðin eru myndræn, spennandi og skemmtileg.
Þraut: Persónur á einu borði eru allt frá sex upp í 16 og borðin samsvarandi að stærð, 6x6 reitir og 16x16 reitir.
Persónur: Þú færð vísbendingu um hverja persónu, sem dæmi Elyse situr í stól. Í þrautinni hér fyrir neðan eru fjórir stólar. Þú átt þannig að finna út hvar Elyse situr
Röð og dálkur: Líkt og í Sudoku má aðeins vera ein persóna í hverri línu og hverjum dálki. Þegar þú spilar á netinu er x sett sjálfkrafa í línur/dálka þegar persóna er komin í reit/kassa. Þú getur líka sett x sjálf/ur í reit/i sem þú ert viss um að engin persóna eigi að vera í.
Vísbendingar: Þú ferð í gegnum allar vísbendingar, í sumum þrautunum þegar þær verða þyngri eru vísbendingar fyrir ofan myndir af persónunum, sem á við um allt borðið eða allar persónurnar.
Fórnarlamb: Þegar allar persónur eru komnar á reit eða í kassa stendur einn reitur eftir auður og þar setur þú fórnarlambið (e. victim).
Morðinginn: Ef þú hefur leyst þrautina rétt er fórnarlambið í sama herbergi eða stað og önnur persóna og sú persóna er þá morðinginn.
(Nánari leiðbeiningar um hvernig á spila eru neðst í greininni).
Bækur - heimasíða - Redditsamfélag
Garand hefur gefið út tvær Murdoku bækur sem báðar eru með 4,5 af 5 möguleikum í einkunn á Goodreads. Þriðja bókin kemur út í lok október. Garand heldur einnig úti vefsíðunni Murdoku.com og eldri síða með Murdermysterypuzzles.com er enn í loftinu og hægt að nálgast eldri þrautir þar. (Á einhverjum tímapunkti breytti hann um nafn á þrautunum sínum og verður að segjast eins og er að það seinna er mun meira grípandi).
Hægt að leysa þraut á netinu eða prenta út
Á Murdoku.com er hægt að spila á netinu frítt í tölvu eða síma, tvær nýjar þrautir koma inn í hverri viku. Hægt er að sækja leikinn í Google Play fyrir Android-síma.
Á síðunni er einnig hægt að prenta út þrautir í lit eða svarthvítu. Lausnir fást með því að ýta á Submit er spilað er á netinu eða með því að prenta lausnina út í prentuðu þrautunum.
Hér má einnig finna aðdáendasíðu með leiðbeiningum og fleiri þrautum frá Garand, sem vísa yfir á heimasíðu hans, en má ekki finna á heimasíðu hans.
Hann segir sjálfur að hann taki oft þrautir út, bara til að breyta til eða ef þær eru ekki vinsælar.
Á Reddit er síðan komið samfélag með um 14 þúsund meðlimum þar sem fólk skiptist á ráðum og fleira og Garand sjálfur er virkur meðlimur.
Hægt að spila einn eða í keppni við aðra
Hægt er að leysa þrautina einn. Einnig má keppa við aðra með því að spila á netinu í sitt hvoru tækinu og sá vinnur sem leysir þrautina á stystum tíma. Ef þraut er prentuð út getur hver og einn fengið eitt blað og allir leysa sömu þraut og sá vinnur sem fyrstur er að kalla Murdoku!
Ég get alla vega sagt það að ég er strax orðin aðdáandi og fimmtudagskvöldið fór í að leysa 18 þrautir og mér var algjörlega sama um að það væri rigning um mitt sumar. Svefninn fór að vísu verulega úr skorðum og dálítillar þreytu gætti í föstudagsmorgunsárið. Restin af þrautunum bíða mín svo að loknum vinnudegi……ok ok ég leysti tvær í hádeginu!
Ég var meira að segja svo ákveðin í að fleiri yrðu spenntir eins og ég og stofnaði hóp á Facebook: Murdoku-þrautir – spjall, aðstoð og stuðningur.
Mögulega mun ég birta aðra grein korter í jól um að ég hafi verið vansvefta síðan um miðjan júlí......sjáum til.....en þangað til bíða nokkrar Murdoku eftir mér.
Hvernig á að spila Murdoku?
Þegar þú opnar þraut á netinu færðu upp teiknað kort (til dæmis hús eða kaffihús) sem er skipt í reiti. Vinstra megin við kortið sérðu lista yfir persónur (þá sem eru líklegir sem morðinginn) og vísbendingar, ein við hverja persónu. Í erfiðari þrautum eru oft einnig vísbendingar fyrir ofan persónumyndirnar.
1. Sudoku-reglan (Staðsetning)
Hver persóna á listanum á sinn stað á kortinu. Aðeins ein persóna má vera í hverri láréttri röð og hverri lóðréttri röð. Ef þú veist að persóna A er í efstu röðinni, getur enginn annar verið í þeirri röð.
2. Lestu vísbendingarnar (Notaðu útilokunaraðferð)
Vísbendingarnar nota rökfræði og áttir til að þrengja hringinn:
Dæmi 1: „Anthony - Hann er í bíl..“ (Þú skoðar hvaða reitir eru með bíl).
Dæmi 2: „Crystal - Hún situr í stól.“ (Þú skoðar hvaða reitir eru með stól).
3. Svona setur þú persónur á reit (Á netinu)
- Smelltu einu sinni á persónu
- Smelltu á reitinn sem þú vilt setja persónuna á og haltu takkanum inni: Myndin af persónunni festist þá í reitnum og tölvan x aðra reiti í sömu línu lárétt og lóðrétt.
4. Lausnin: Finndu morðingjann!
Þegar þú ert búinn að setja allar persónur á réttan stað samkvæmt vísbendingunum, mun einn reitur standa eftir auður.
- Þar er fórnarlambið (e. The Victim).
- Aðalreglan er: Morðinginn var eini einstaklingurinn í sama herbergi/svæði og fórnarlambið.
- Skoðaðu hver er í herberginu með fórnarlambinu, veldu þá persónu sem morðingjann og smelltu á Submit.
Algeng orð í þraut:
- Suspects: Hinir grunuðu (persónur sem þú þarft að staðsetja).
- Victim: Fórnarlambið (sá sem var myrtur).
- Murderer: Morðinginn (sökudólgurinn).
- Clues: Vísbendingar.
- Grid / Board: Spilaborðið / Reitirnir.
- Row: Lárétt röð.
- Column: Lóðréttur röð/dálkur..
- Room: Herbergi/svæði (hvert þeirra er afmarkað með breiðri svartri línu á kortinu).
Áttir og staðsetningar (Mjög mikilvægt)
Vísbendingarnar nota oft áttir til að segja til um hvar fólk er staðsett miðað við aðrar persónur (er mjög oft í erfiðari þrautum):
- North: Norður (fyrir ofan / upp).
- South: Suður (fyrir neðan / niður).
- East: Austur (hægra megin / til hægri).
- West: Vestur (vinstra megin / til vinstri).
- Dæmi: „Alex was North of Ben“ = Alex var fyrir ofan Ben (í röð fyrir ofan Ben).
Algengar vísbendingar og hvernig á að skilja þær
Hér eru dæmi um setningar sem koma oft fram í þrautunum:
- Adjacent to...: Við hliðina á... (reiturinn beint við hliðina á, fyrir ofan eða neðan).
- In the same row: Í sömu láréttu röð.
- In the same column: Í sama lóðrétta dálki.
- Not in the same room: Ekki í sama herbergi.
- Was beside a table: Var við borð (þú leitar að borði á kortinu). Sama á við um shelf/hilla, tv/sjónvarp, plant/planta, tree/tré, car/bíll, chair/stóll, window/gluggi. Beside þýðir að persónan er fyrir ofan, neðan, vinstra megin við eða hægra megin við hlutinn sem tilgreindur er og í sama húsi/svæði.
- Was on a rug / carpet: Var á teppi.
Persónur geta verið í sama reit og oil slick/olíublettur, car/bíll, chair/stóll.
Persónur geta ekki verið í sama reit og tv/sjónvarp, shelf/hilla, table/borð, plant/planta.
Dæmigerð þrautavísbending:
„Chloe was in the same row as David, but they were not in the same room.“
Chloe var í sömu láréttu röð og David, en þau voru ekki í sama herbergi. (Þú veist þá að þau eru í sömu línu en veggur skilur þau að).