Katrín Edda Þorsteinsdóttir vélaverkfræðingur er flutt heim til Íslands eftir 14 ára búsetu í Þýskalandi. Þangað flutti hún ein til að stunda nám, en flytur heim með eiginmanninum Markúsi Wasserbaech og tveimur börnum þeirra, Elísu Eyþóru og Aroni.
Katrín Edda nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og hefur deilt með fylgjendum sínum á Instagram flutningunum og leit hjónanna að framtíðarheimili fjölskyldunnar, sem fannst í parhúsi í Hveragerði.
Markús og börnin sjást margoft með í myndböndum og myndum Katrínar Eddu og í því nýjasta sýnir fjölskyldan heimilið.
„Nýja heima. Svo spennt að gera þetta að okkar heimili, skapa nýjar minningar og horfa á börnin mín stækka hérna.“
Húsið samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu í einu rými, svefnherbergi, tveimur barnaherbergjum, gestaherbergi/skrifstofu, tveimur baðherbergjum með sturtu og baðkari, og þvottahúsi. Fyrir aftan hús er pallur og garður þar sem Katrín Edda segir þau ætla að setja trampólín. Segir hún þau einnig ætla að setja upp heimalíkamsrækt, aðallega fyrir Markús.
„Spennt að búa til nýjar minningar á nýja heimilinu okkar.“