Fókus

Fjögur merki um að makinn þinn sé í fórnarlambshlutverki

Mynd
Mynd/Getty

Það getur verið erfitt að búa með maka sem setur sig stöðugt í hlutverk fórnarlambs. Það er þó ekki alltaf augljóst hvort makinn sýni slíka hegðun. Þar að auki geta ástæðurnar fyrir því verið margvíslegar, allt frá lélegu sjálfstrausti sem rekja má til sálræns áfalls fyrr á ævinni til slæmrar reynslu af gagnrýni frá öðru fólki. 

Vice hefur tekið saman lista yfir fjögur merki þess að makinn sé með fórnarlambshugarfar. 

  1. Öll tilfinningabyrgðin lendir á þér

Fólk í föstu sambandi verður að deila tilfinningalega álaginu, ef ekki þá leiðir það til uppgjafar og sívaxandi gremju í garð makans. Fólk sem finnst það vera fórnarlamb reynir oft að forðast álag á tilfinningarnar og vill að makinn sjái um að leysa slík mál.

„Ef annar aðilinn í sambandinu finnst að öll tilfinningalega byrgðin sé að lenda á sér þá hefur það áhrif á samskiptin,“ segir Claudia Johnson sambandsráðgjafi. „Það getur leitt til að þið eigið sama rifrildið aftur og aftur því þegar málið kemst á dagskrá þá vill annar aðilinn ekki taka ábyrgð og taka þátt í að leysa vandann.“

  1. Það er bara þú sem ert að reyna að bæta samskiptin

Að leysa samskiptaerfiðleika er einungis hægt ef báðir aðilar taka þátt og vinna saman að lausn. Ef makinn er með fórnarlambshugarfar þá er ólíklegt að hann geti tekið þátt í slíkri vinnu.

„Ef makinn þolir ekki að viðurkenna ábyrgð þá er líklegt að hann finnst að verið sé að ráðast á sig persónulega þegar samskiptaerfiðleikar eru settir á dagskrá,“ segir Johnson. „Til að leysa úr samskiptaerfiðleikum verða pör að játa sína bresti fyrir hvort öðru, annars fer annar aðilinn í vörn og gremjan eykst, þá er hætta á að þú farir að ýta makanum frá þér.“

  1. Makinn upplifir sig valdalausan

Þeir sem eru með fórnarlambshugarfar eru gjarnir á að líta á eða spila sig sem valdalausan aðila í sambandinu og virðast jafnvel ekki átta sig á að þeir hafi eitthvað um málin að segja. 

  1. Makinn forðast ábyrgð

Einhver sem er með fórnarlambshugarfar á það til að kenna öllum öðrum um líðan sína og vandamál en aldrei sig sjálfan. Það gætu verið vinir, fyrrverandi makar eða þú. Þannig einstaklingar spila sig sem algjörlega valdalausa í öllum ákvörðunum eða hegðun, þá þurfa þeir ekki að taka ábyrgð eða skammast sín. 

„Að taka ábyrgð er eins og vera dæmdur eða gagnrýndur eða jafnvel hafnað af maka sínum,“ segir Johnson. „Þetta er yfirleitt ekki persónueinkenni heldur frekar lærð hegðun.“

Hvað á svo að gera?

Ef makinn þinn finnst hann vera fórnarlamb þá þýðir lítið að koma með gagnrýni, frekar á að mæta því með samúð. „Ekki benda makanum á að hann sé alltaf að spila sig sem fórnarlamb,“ segir Johnson. „Frekar að bera kennsl á hegðunina sem þarf að breyta og hvernig hún lætur þér líða.“ 

Það hefur ekkert upp á sig að vera annar gagnrýnandinn, makinn þarf ekki á því að halda, frekar að hjálpa makanum að ná stjórn á líðan sinni, ákvörðunum og hlutverki í sambandinu. „Spurðu frekar hvað hægt sé að gera öðruvísi en hverjum þetta var að kenna. Að breyta um fókus getur virkilega hjálpað til við að færa sig úr því að vera stöðugt í vörn.“