Fókus

Dúfnakonan úr Aleinn heima 2 látin

Mynd

Óskarsverðlaunaleikkonan Brenda Fricker er látin 81 árs að aldri, hún er þekktust fyrir að leika dúfnakonuna í Aleinn Heima 2. 

Fricker er frá Írlandi og hlaut Óskarsverðlaunin árið 1990 fyrir leik sinn í kvikmyndinni My Left Foot. 

Mynd

Phil Belfield tilkynnti um andlát hennar: „Við munum aldrei sjá aðra eins og hana,“ hefur BBC eftir honum. „Það var heiður að fá að kynnast henni og hún mun alltaf lifa í hjörtum kvikmyndaunnenda um allan heim.“