Fókus

Systir Rob Reiner stendur með morðingja hans og syni

Mynd
Nick Reiner.

Systir leikstjórans Robs Reiner, Annie Reiner, hefur staðið við hlið frænda síns, Nick syni Reiner, síðan Nick var ákærður fyrir morðin á foreldrum sínum, Rob og Michele Singer Reiner, í desember 2025.

„Annie hefur stutt Nick í gegnum allt málaferlin,“ segir heimildarmaður Page Six. „Þrátt fyrir aðstæður málsins hefur hún staðið með honum og nærvera hennar hefur þýtt mikið fyrir hann.“

Mynd
Teikning af Nick Reiner í dómssal.

Nick hefur setið í Twin Towers fangelsinu í Los Angeles frá handtöku og versnar ástand hans stöðugt. Heimildarmaður tengdur fjölskyldu Reiner sagði við Daily Mail að „Nick líkist ekki lengur Nick. Honum  er að hraka hratt. Enginn myndi þekkja hann. Hann er næstum sköllóttur því þeir þurfa að halda hárinu á honum mjög stuttu til að halda skordýrunum úti og hann er rosalega grannur vegna þess hve öflug lyf hann tekur. 

Nick hefur ekki verið hraustur í mörg ár, en fyrir fangelsisvistina mátti greina eitthvað af persónuleika hans. Ekki núna. Hann er eins og bablandi barn, alveg úr takti,“ hélt heimildarmaðurinn áfram. „Það er svo slæmt að lögfræðingar hans eiga erfitt með að tala við hann.“

Annie, 77 ára, hefur að mestu leyti haldið sig fjarri sviðsljósinu síðan bróðir hennar og mágkona létust.

Mynd
Annie ásamt föður sínum Carl Reiner árið 2010.

Lögreglan í Los Angeles handtók Nick 14. desember 2025, stuttu eftir að foreldrar hans, sem voru 78 og 70 ára, fundust stungin til bana á heimili sínu í Brentwood. Hann var ákærður fyrir tvö manndráp af fyrsta stigi með sérstökum aðstæðum, þar á meðal fjölda morða og persónulega notkun hnífs. Samkvæmt dánarvottorðum Robs og Michele létust þau innan „mínútna“ eftir að hafa hlotið „marga beittan áverka“ með „hníf, af völdum annars“.

Ef Nick verður fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér dauðadóm eða lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Nick, sem hafði lent í rifrildi við foreldra sína í jólaboði Conans O'Brien 13. desember, var greindur með geðklofa fyrir morðin og á að baki langa sögu um fíkniefnavanda. Hann neitaði sök í febrúar.

Rob og Michele, sem höfðu verið gift síðan 1989, eignuðust einnig soninn Jake Reiner, 35 ára, og dótturina Romy Reiner, 28 ára. Áður en leikarinn og leikstjórinn giftist Michele var hann giftur Penny Marshall frá 1971 til 1981. Á meðan þau voru saman ættleiddi Rob dóttur hennar, Tracy Reiner, 62 ára.

Mynd
Reiner hjónin ásamt börnum sínum.

Jake rauf þögn sína um andlát foreldra sinna í grein í Substack þar sem lýst var nákvæmlega þeirri stundu sem hann komst að því að þau væru látin.

„Ég var í Union Station í minningarathöfn tileinkaðri einum af mínum bestu vinum, Christian Anderson, sem lést í október,“ skrifaði Jake. „Á þeirri stundu fékk ég símtal frá systur minni, Romy, þar sem hún sagði mér að faðir okkar væri látinn. Nokkrum mínútum síðar hringdi hún til baka og sagði mér að móðir okkar væri líka dáin.“

Jake hélt áfram: „45 mínútna Lyft-ferðin frá miðbænum að vesturhlutanum var óbærileg. Heimurinn minn, eins og ég þekkti hann, hafði hrunið. Ég var í leiðslu. Það eina sem ég gat einbeitt mér að var að komast á æskuheimili mitt. Ég þurfti að komast til systur minnar. Ég þurfti að átta mig á hvað í ósköpunum gerðist.“

Jake harmaði að honum fyndist hann „rændur svo mörgu“ eftir að hafa misst pabba sinn og mömmu og benti á að harmleikurinn „braut hjarta mitt og gerði mig reiðan á sama tíma.“

„Ekkert getur undirbúið þig fyrir þá tilfinningu að missa báða foreldra sína samstundis,“ bætti hann við. „Það er of hræðilegt til að skilja. Ég vakna enn á hverjum morgni og þarf að sannfæra sjálfan mig um að nei, þetta er ekki draumur. Þetta er sannarlega martröð mín.“