Fókus

Svandís Anna segir merkilegt hvað fólk eigi erfitt með að viðurkenna þetta: „Við erum ennþá svo léleg í þessu“

Mynd
Sveindís Anna Sigurðardóttir. Samsett mynd/Getty/Skjáskot af Youtube

„Við eigum svo erfitt með að horfa á einhvern sem okkur þykir vænt um, erum í einhverjum tengslum við og segja vá, þessi hefur verið að beita ofbeldi eða hefur verið að meiða einhvern. Við erum ennþá svo léleg í þessu. Alveg merkilegt hvað við eigum erfitt með að viðurkenna að gott fólk gerir líka slæma hluti,“ segir Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Stígamótum, í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Karlmennskan. „Það misstígur sig. Það gerir viljandi eitthvað ljótt. Leiðin til að hjálpa áfram er að hjálpa þeim að axla ábyrgð og bæta.“

Stígamót standa árlega fyrir átaksverkefninu Sjúk ást, sem er ætlað ungu fólki. Kveikjan að verkefninu er hversu algengt kynferðisofbeldi er meðal ungs fólks og hversu oft hefði mátt koma í veg fyrir skaða með fræðslu. 

„Við viljum ekki tala um ofbeldismenn eða gerendur þegar við erum að tala um börn eða unglinga. Við viljum veita fólki tækifæri til að axla ábyrgð og gera betur,“ segir Svandís Anna.

Hún segir flókið að ná til fólks sem þarf að heyra skilaboðin því enginn skilgreinir sig sem ofbeldismann. „Það er það sem er svo flókið, að ná til hópsins án þess að kalla þá ofbeldismenn af því að þeir tengja ekki við þann stimpil og fólkið í kringum þá ekki heldur.“

Fullorðið fólk hafi gott af því að skoða efnið

Svandís Anna segir að efnið eigi einnig við um eldra fólk: 

„Það sem við sjáum í tengslum við allt efni sem við búum til í gengum Sjúka ást, þar sem markhópurinn er 13 til 25 ára, það smellpassar við eldra fólkið líka. Fullorðna fólkið sem kemur inn til okkar á Stígamótum það hefur svo gott af því að fara í gegnum þetta efni,“ segir hún.

„Við erum með sambandsrófið, hvað einkennir heilbrigt, óheilbrigt og svo ofbeldissamband, þau þurfa á þessu að halda. Kynlíf, hvað er gott, slæmt og svo kynferðisofbeldi, við erum líka með róf þar.“

Margir hafa einnig reynslu af hræðilega ljótu og grófu ofbeldi. „Mörg hver eru að segja mér að þetta hafi ekki verið rætt, alls ekki með þessum hætti og sum hafa ekki fengið tækifæri, verið í þannig samböndum að þau hafa ekki getað unnið sig frá því að suða eða unnið úr afbrýðisseminni og allt þetta. Þetta á allt við um eldra fólk líka.“