Fókus

Magnús hringdi af sjúkrahúsinu í Marinó og afboðaði sig - Greindur með bráðahvítblæði sama dag: „Við brotnuðum bara allir niður“ 

Mynd

„Ég myndi ekki óska neinum að ganga í gegnum svona dag.“ Þannig lýsir Marínó Geir Lilliendahl, trommari Stuðlabandsins, deginum sem söngvari hljómsveitarinnar Magnús Kjartan Eyjólfsson greindist með bráðahvítblæði.

Marínó segir að hann hafi verið nýbúinn að fá afhenta lykla að nýju húsi og var á leið í hádegismat þegar Magnús hringdi af sjúkrahúsinu. Nokkrum klukkustundum síðar var hann kominn á svið með Stuðlabandinu eftir að hafa þurft með skömmum fyrirvara að finna söngvara til að leysa Magnús af. „Þetta var dagur sem náttúrulega bara var hræðilegur dagur heilt yfir,“ segir hann.

Hvert á ég að mæta?

Forsaga málsins er sú að Magnús fór á sjúkrahús laugardaginn 17. febrúar árið 2024. Hann hafði verið slappur í nokkra daga. „Ég ætlaði bara að klára þessa skoðun og taka svo ballið um kvöldið,“ segir Magnús í hlaðvarpinu Popparasögur.

Af því varð þó aldrei að Magnús kæmist á ballið. Hann var sendur með sjúkrabíl frá Selfossi til Reykjavíkur og seinna um daginn var hann kominn inn á krabbameinsdeild. Marínó var Magnúsi og unnustu hans, Sigríði, innan handar þennan dag og fór til þeirra á sjúkrahúsið í Reykjavík.

Á sama tíma reyndi hann að finna söngvara fyrir kvöldið þegar ljóst var að Magnús kæmist ekki. Marínó hringdi í Jónsa úr Í svörtum fötum sem hljóp tafarlaust í skarðið. „Hann sagði bara: „Hvert á ég að mæta?““

Mynd

Líkaminn gaf sig á ballinu

Marínó yfirgaf sjúkrahúsið í Reykjavík um kvöldið og keyrði beint á Hellu þar sem aðrir meðlimir Stuðlabandsins biðu ásamt Jónsa og Sverri Bergmann sem hafði einnig bæst í hópinn til að leysa Magnús af.

Framan af gekk ballið áfallalaust fyrir sig en þegar um hálftími var eftir fór Marínó að finna fyrir því hversu mikið þessi dagur hafði tekið á fyrir hann. „Þá fer líkami minn að hlaupa allur í kekki og þá átta ég mig á því að ég átti náttúrlega ennþá eftir að borða hádegismatinn sem ég ætlaði að fá mér áður en að Maggi hringdi,” útskýrir Marínó.

Strákarnir kláruðu ballið og þurfti meðal annars annar meðlimur hljómsveitarinnar, Bjarni Rúnarsson, að leysa Marínó af á trommusettinu. „Þegar ballið var búið var hver einasti maður í hljómsveitinni náttúrlega bara bugaður á sálinni. Við brotnuðum bara allir niður,“ rifjar hann upp.

Saga þessa dags endaði svo þar sem hún byrjaði, á sjúkrahúsinu á Selfossi. „Mér var ruslað út í bíl og keyrður á bráðamóttökuna á Selfossi. Þar á að reyna að sækjast eftir því að ég fái næringu og vökva í æð. En ég fékk nú ekkert mikið meira heldur en bara vatnsglas og hálfa brauðsneið með gúrku,” segir Marínó og hlær.

Í dag er Magnús sjúkdómslaus eftir að hafa klárað meðferðina við krabbameininu sem tók meira en tvö ár. Hann er þó ennþá undir ströngu eftirliti lækna og vinnur að því að ná fyrri styrk að fullu. Hann hefur verið að spila með Stuðlabandinu síðan í apríl í fyrra, árið 2025, en segist þó ekki enn hafa náð fullum styrk. „En ég er farinn að nálgast það hraðar, finnst mér,” segir Magnús.

„Við erum ekki að fara að stoppa”

Í hlaðvarpinu fara þeir félagar einnig yfir feril sveitarinnar sem spannar 22 ár, alveg frá bílskúr í Ölfusi á Suðurlandi yfir í að vera í dag ein vinsælasta hljómsveit landsins. En saga þeirra er óvenjuleg á þann hátt að þeir slógu ekki í gegn með vinsælum lögum sem fengu spilun í útvarpi eða á streymisveitum. Þeir fóru aðra leið.

Vendipunkturinn hafi verið ákvörðun sem tekin var árið 2014. „Við ætluðum að verða bara ógeðslega gott band. Við ætluðum bara að gera þetta af alvöru,” segir Magnús og Marínó bætir við að fagmennska hafi orðið lykillinn að velgengninni. „Það að mínu mati hefur hjálpað okkur mikið. Hún hefur alltaf verið, alveg sama hvað viðburðurinn er stór, þá er metnaðurinn alltaf jafn hár.“

Í þættinum ræða þeir einnig hvernig lagið Í larí lei varð þeirra vinsælasta lag eftir að upptaka af balli þeirra fór víða á samfélagsmiðlum. Magnús telur að margar hljómsveitir hafi átt sambærileg augnablik í gegnum tíðina en munurinn hafi verið sá að Stuðlabandið hafi verið tilbúið að festa þau á filmu. „Það er örugglega fullt af hljómsveitum sem hafa átt svona Larí Lei-móment. En þær voru ekki með myndavélar og ekki að taka upp ballið, þannig að þær gátu ekki gefið það út.“

Þrátt fyrir meira en tvo áratugi á sviði segja þeir framtíðina bjartari en nokkru sinni fyrr. „Við erum að nálgast okkar sterkasta. Við höfum aldrei verið nær því síðan að Maggi greindist,“ segir Marínó og bætir við. „Það er búið að ýta á reset og vélin er alveg funheit. Við erum ekki að fara að stoppa.“

Í þættinum ræða þeir einnig breytingar á sveitaballamenningunni, gestasöngvara á borð við Eirík Hauksson, Siggu Beinteins og Björgvin Halldórsson, ásamt sögunni á bak við Þjóðhátíðarlagið Við eldana og mörg af eftirminnilegustu augnablikum Stuðlabandsins.