Barnastjarnan og leikkonan Ashley Johnson greinir frá því að hafa verið næstum því rænt sem barn. Vopnaður maður braust inn á upptökusett sjónvarpsþátta og reyndi að hafa hana á brott með sér.
Ashley Johnson, sem er í dag 42 ára gömul og einna þekktust fyrir að leika Ellie Williams í tölvuleikjunum The Last of Us, lék sem barn í gamanþáttunum Growing Pains seint á níunda áratugnum. En það var einn vinsælasti sjónvarpsþáttur Bandaríkjanna á sínum tíma.
Í nýlegu hlaðvarpi sem kallast Weird Kids greinir Johnson frá skelfilegu atviki sem átti sér stað þegar hún var á sínu fyrsta ári í þáttunum. Þættinum hafði borist hótunarbréf frá nafnlausum aðila skömmu áður. Í bréfinu stóð:
„Ég ætla að koma á settið og taka með mér byssu og ég ætla að myrða einhvern af leikurunum.“
Líklegt þykir að um sama einstakling hafi verið að ræða sem skrifaði bréfið og reyndi skömmu síðar að ræna Johnson.
„Ég var að ganga með mömmu minni og man eftir því að einhver maður stekkur fram og grípur mig og hleypur af stað,“ segir Johnson í hlaðvarpinu. „Það eina sem ég man svo var að öryggisverðirnir náðu honum eftir einhvern tíma.“
Johnson kastaðist til í hamaganginum þegar maðurinn var gripinn af öryggisvörðunum. Þá man hún eftir að hafa verið spurð hvort það væri í lagi með hana og að hún hafi verið með samviskubit. Hún hélt að hún myndi lenda í vandræðum út af þessu og kenndi sér um.