Fókus

Tom Holland biður Tom Holland afsökunar

Mynd

Leikarinn Tom Holland kynntist loksins alnafna sínum, sagnfræðingnum og rithöfundinum Tom Holland, í vandræðalegu viðtali eftir að þeir mættu báðir á frumsýningu Ódysseifskvikmyndarinnar í London án þess að hittast.

Holland og Holland hittust í fyrsta skipti sunnudaginn 12. Júlí í sérstökum þætti af hlaðvarpi þess eldri The Rest Is History .

Sagnfræðingurinn lýsti nokkuð gremju sinni yfir því að geta ekki googlað sjálfan sig ef hann vildi, þar sem alnafni hans er einn frægasti leikari sinnar kynslóðar.

„Og ef ég væri sú manneskja sem googlaði sjálfa sig reglulega, þá hefðirðu eyðilagt möguleika mína til að gera það,“ sagði sagnfræðingurinn.

„Fyrirgefðu, Tom,“ svaraði leikarinn og hinn Holland bætti við: „Jæja, ég googla ekki sjálfan mig svo það er alveg í lagi.“

 

Holland og Holland ræddu einnig kvikmyndina The Odyssey sem Tom leikur í, en báðir voru við frumsýningu hennar í London fyrr í þessum mánuði.

Sagnfræðingurinn skrifaði í hástert um myndina á X: „Þetta er á vissan hátt besta kvikmyndaaðlögun grískrar goðsagnar sem ég hef séð. Myndin heiðrar Homer en gerir um leið eitthvað nýtt úr honum.“

Nokkrir netverjar rugluðust og spurði einn meðal annarsi: „Bróðir, ert þú í henni?“Annar grínaðist: „Ef Tom Holland hittir Tom Holland gæti alheimurinn hrunið.“

„Okkur vantar mynd af þér og hinum Tom Holland!“

Mynd

Þegar sagnfræðingurinn lýsti söguþræðinum sagði leikarinn: „Fyrir alla sem þekkja Ódysseif, að gera hana að kvikmynd er eins og þú þurfir að gera fimm myndir því þetta er svo umfangsmikið verk.“

„En hæfileiki Chris til að segja þessa sögu á 130 blaðsíðum og varðveita jafnframt hjarta og sál þess sem gerir söguna svo spennandi, svo tilfinningaþrungna og svo viðeigandi í dag, ég held að það sé einfaldlega mikið afrek.“

Leikarinn hrósaði enn fremur „skapandi ákvörðunum“ Nolan sem leikstjóra.

„Hann hefur svolítið ýtt út fyrir mörk þess sem má telja sögulega nákvæmt eða veruleika vegna þess að það er goðsögnin,“ bætti hann við.