Hafnargata í Reykjanesbæ hefur tekið nokkrum breytingum á síðustu 70 árum. Hafnargata er þekktasta gata bæarins og er hún kölluð „lífæðin“ í hönnunarhandbók sem var gefin út fyrir Reykjanesbæ.
Líklegt er að gatan taki enn frekari breytingum á næstu árum en fram kemur í skipulagsgátt að þar séu mikil tækifæri til uppbyggingar og góðir þróunarmöguleikar til að mynda sterka heild og líflegt miðbæjarhverfi.
Byggðasafn Reykjanesbæjar birti í vikunni skemmtilegar myndir sem varpa ljósi á hvernig gatan leit út eitt sinn. Enn má þó þekkja mörg kennileiti.
„Helgi S. Jónsson tók þessar myndir, líklega um miðja síðustu öld,“ segir í færslu byggðasafnsins.
Byggðasafnið er duglegt við að birta myndir í þeirra vörslu, þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með eru hvattir til að fylgjast með síðunni þeirra á Facebook.