Úlfar Baldvin Kjartansson, sex ára Dalvíkingur, greindist fyrr á þessu ári með óskurðtækt heilaæxli og hefur síðan þá barist af ótrúlegu hugrekki í ströngum meðferðum í Svíþjóð.
Úlfar Baldvin, sem verður sjö ára 22. september, er að sögn vina og vandamanna kærleiksbjörn sem er dýrkaður og dáður af öllum sem hann þekkja. Ætla þeir að hlaupa honum til heiðurs í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst og um leið styðja starfsemi Börn með krabbamein, sem veitir börnum og fjölskyldum þeirra mikilvægan stuðning á erfiðum tímum. Kjartan faðir Úlfars Baldvins ætlar að hlaupa 21 km. Hér má styrkja Vini Úlfars í maraþoninu.
„Með hverju skrefi viljum við sýna Úlfari og öllum þeim börnum sem glíma við krabbamein að þau standa ekki ein. Við hlaupum fyrir hugrekkið, vonina og kærleikann.“
Til að gleðja Úlfar Baldvin, systur hans Melkorku níu ára og foreldra þeirra, Nönnu Hinriksdóttur og Kjartan Hjaltason, ákváð Gleðjum saman að skapa einstaka upplifun fyrir fjölskylduna.
Gleðjum saman er verkefni stofnað af Orra Rafni Sigurðssyni, sem unnið er í samstarfi með íþróttafólki þar sem gefnar eru áritaðar treyjur og upplifun til einstaklinga sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, glíma við fötlun/veikindi/sjúkdóma eða eru hversdagshetjur
„Þegar samfélagið stendur saman verða til ómetanleg augnablik. Markmiðið er einfalt: að gefa fjölskyldunni augnablik þar sem veikindin fá aðeins að víkja og gleðin fær að njóta sín.“
Úlfar Baldvin hefur gengist undir fjölda lyfjameðferða sem hafa tekið mikið á hann og fjölskyldu hans. Þrátt fyrir allt sem hann hefur gengið í gegnum mætir hann hverjum degi af ótrúlegu hugrekki.
„Melkorka systir hans hefur staðið þétt við hlið bróður síns í gegnum allt þetta ferli. Þess vegna fannst okkur mikilvægt að þessi upplifun yrði fyrir þau bæði.“
Í færslu Gleðjum saman kemur fram að með hjálp frábærra samstarfsaðila fengu systkinin sitt hvora sérmerkta landsliðstreyjuna frá KSÍ og KKÍ sem gáfu treyjurnar. Ásamt því bauð Landssamband hestamanna þeim á Landsmót hestamanna og Skynörvun gaf þeim tvo þyngdarbangsa sem geta veitt öryggi og ró á erfiðum tímum. RÚV bauð þeim svo að lokum í heimsókn og fengu systkinin að fylgjast með útsendingu HM-stofunnar úr sjónvarpsverinu ásamt skoðunarferð um bygginguna.
„Á tímum sem þessum reynir gríðarlega á fjölskyldur, bæði andlega og fjárhagslega. Ef þú hefur tök á og vilt styðja fjölskylduna viljum við benda á styrktarreikning þeirra“
Kennitala: 180389-2889 (Kjartan Hjaltason, faðir Baldvins Úlfars)
Reikningsnúmer: 0177-26-180389
„Þegar samfélagið stendur saman verða til augnablik sem enginn hefði getað skapað einn. Það er Gleðjum saman. Dreifum gleðinni saman.“