Bandaríska þungarokkshljómsveitin Manowar snýr aftur til Íslands í nóvember næstkomandi og heldur tvo tónleika þar sem fluttar verða sitt hvorar plöturnar. Það er Kings of Metal og Fighting the World, tvær af vinsælustu plötum þeirra frá níunda áratugnum.
Manowar tróð upp í Silfurbergi í Hörpu sumarið 2025 á uppseldum tónleikum og er hljómsveitin, sem hefur plægt rokkakurinn í hartnær hálfa öld hungruð í meira.
Fréttatilkynningin í heild sinni:
„Hinir hugumprúðu og eilífu stríðsmenn hins algera þungarokks“* MANOWAR snúa aftur til Íslands með KINGS OF METAL FIGHTING THE WORLD tónleikaferðina.
Tímamótaplöturnar „Kings Of Metal“ og „Fighting The World“ verða fluttar í heild sinni á tveimur kvöldum í Hörpu.
Hljómsveitin hélt uppselda tónleika í Hörpu í fyrrasumar, þegar hún lék m.a. efni af plötunum Hail To England og Sign Of The Hammer. Silfurberg var algjörlega pakkað þar sem á meðal boðsgesta voru meðal annarra Guðni Th Jóhannesson fyrrum forseti og Hrafn Gunnlaugsson!
Hinn íslenski „Her Ódauðlegra“ (Icelandic Army Of Immortals) hefur kallað MANOWAR aftur til Reykjavíkur. Fyrstu tónleikar sveitarinnar sýndu heiminum svo ekki varð um villst hversu tryggir hinir íslensku aðdáendur eru.
Nú leiðir „KINGS OF METAL FIGHTING THE WORLD“ tónleikaferðin MANOWAR aftur til norðurslóða. Fimmtudaginn 12. nóvember og föstudaginn 13. nóvember 2026 mun undirstaða Hörpu hristast undir hreinum og ómenguðum krafti hins eina sanna málms (True Metal).
Við þessa endurkomu verða fluttar tvær af dýrmætustu plötunum í sögu þungarokksins. Ódauðlegir tónleikagestir á fimmtudeginum munu fá að upplifa meistaraverkið „Kings Of Metal“ í heild sinni á tónleikum. Föstudagskvöldið verður svo helgað plötunni „Fighting The World“ frá upphafi til enda. Bæði kvöldin verða jafnframt hlaðin öðrum þungarokksslögurum frá ferli sveitarinnar.
„Þetta land er byggt á harðfylgi og þrjósku (determination and defiance). Það er einmitt þessi andi sem rennur í æðum íslensku Ódauðlegu aðdáenda okkar,“ segir Joey De Maio. „Fyrsta reynsla okkar af Reykjavík skildi alla viðstadda eftir hungraða í meira. Að snúa aftur til að flytja „Kings Of Metal“ og „Fighting The World“ í heild sinni er svar okkar við kalli þeirra. Við munum standa hlið við hlið með okkar Ódauðlegu og leysa úr læðingi stálregn og eyðingu.“
"Til að gera langa sögu stutta að þá varð sveitin hreinlega ástfangin af landi og þjóð og frá því að þeir sneru til baka eftir síðustu heimsókn höfum við verið að vinna að því að koma þeim til landsins aftur." - Þorsteinn Kolbeinsson
Nánari upplýsingar um tónleikana
- Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 – Reykjavík, Ísland – Harpa (Flutt verður platan Kings Of Metal í heild sinni + aðrir slagarar sveitarinnar)
- Föstudaginn 13. nóvember 2026 – Reykjavík, Ísland – Harpa (Flutt verður platan Fighting The World í heild sinni + aðrir slagarar sveitarinnar)
Miðasala
Miðasala á þessa tónleika er hafin á tix.is og harpa.is
- Föstudagurinn 12. nóvember: Kings of Metal: https://www.harpa.is/vidburdir/22006
- Laugardagurinn 13. nóvember: Fighting the World: https://www.harpa.is/vidburdir/22020
Ultimate Experience
MANOWAR býður jafnframt upp á takmarkað magn af uppfærslum (Upgrades) fyrir þá sem vilja tryggja sér einstæðustu og persónulegustu TÓNLEIKAUPPLIFUNINA.
Gakk til liðs við Her Ódauðlegra (MANOWAR’s Army Of Immortals) á manowar.com.
Það er ókeypis og veitir aðgang að einstöku efni beint frá herstjórninni (High Command), snemmbúnum fréttum, forkaupsrétt á varningi (merchandise) og 10% kynningarafslátt í opinberu MANOWAR-versluninni.