Þegar kemur að mat er smekkur manna æði misjafn og má segja að það sjáist ágætlega í innleggi sem birtist í Facebook-hópnum Matartips! fyrir skemmstu.
Þar birtist innlegg þar sem meðlimir voru beðnir um að nefna „ofmetnustu matvæli allra tíma“ að þeirra mati. Meðlimir hópsins létu sitt ekki eftir liggja og þegar þetta er skrifað hafa hátt í 400 athugasemdir verið skrifaðar við færsluna.
Einn nefnir hið vinsæla dubai-súkkulaði sem notið hefur töluverðra vinsælda undanfarin misseri. Nokkrir taka undir með viðkomandi og segir til að mynda einn: „Illa ógeðslegt. Fékk einu sinni svona gefins og eftir einn bita henti ég rest.“
Þá eru matvæli á borð við Nutella, rjúpur, makkarónur, lax, sushi, grænar baunir og prótein-pönnukökur nefnd til sögunnar.
Sumir nefna matvæli sem aðrir elska, til dæmis einn sem þolir ekki ostrur. Þrátt fyrir nokkur mótmæli er athyglisverðasta athugasemdin frá einstaklingi sem segir: „Ostrur eru eins og einhver hafi hóstað upp úr sér slími.“
Þá nefnir einn gráðostinn vinsæla sem er í uppáhaldi hjá sumum. Margir taka undir með viðkomandi og segir einn til dæmis: „Mesti viðbjóður sem til er“ á meðan annar segir einfaldlega: „Gjöreyðingarvopn.“
Einn nefnir trufflusveppi, eða kannski frekar trufflusveppa-bragðið sem mörgum þykir gott. „Heyrðu já, hvert hringir maður til að láta banna þetta ógeð,“ spyr einn meðlimur hópsins.
Ein umdeild skoðun varðar bernaise-sósuna sem margir hreinlega elska og fá ekki nóg af. „Heyrðu já, ég bara næ því fyrirbæri ekki,“ segir í einni athugasemd. Aðrir eru þó hjartanlega ósammála og segist einn geta borðað hana með skeið á meðan annar segir: „Vertu úti.“
Þá nefnir einn meðlimur kóríander sem sumum þykir ómissandi með ákveðnum réttum. „Haha, var að bíða eftir þessu,“ segir einn og annar bætir við að kóríander sé „sápan í jurtaríkinu“.
Önnur matvæli sem eru ekki í uppáhaldi hjá sumum eru til dæmis geitaostur, svið, Oreo-kex, niðursoðinn aspas, beikon og gúrkur svo eitthvað sé nefnt.