Fókus

Hertogahjónin sögð hafa orðið fyrir vonbrigðum með endurfundina við konunginn

Mynd

Hertogahjónin af Sussex, Harry Bretaprins og Meghan Markle, sneru á dögunum aftur til Bretlands með börnin sín tvö þar sem þau hittu Karl Bretakonung og Camillu drottningu. Þessir endurfundir áttu sér langan aðdraganda enda hefur verið stirt milli feðganna allt frá því að Harry flutti til Bandaríkjanna og byrjaði þar sem opna sig um lífið í konungsfjölskyldunni, svo sem í frægu viðtali hjá Opruh Winfrey og í ævinminningunum Spare. Karli mun hafa sárnað það nokkuð að sonur hans hafi þannig hleypt almenningi inn í einkamálefni fjölskyldunnar. 

Harry hefur undanfarið lýst yfir vilja til að sættast við fjölskyldu sína. Viðtökurnar við sáttaboðinu hafa verið dræmar, að minnsta kosti hjá eldri bróður Harry, Vilhjálmi prins, sem margir telja að sé endanlega búinn að afskrifa litla bróður sinn. Annað á við um konunginn sem mun vera tilbúinn til að fyrirgefa. Biðu því margir þess með eftirvæntingu að Karl fengi loksins að hitta barnabörnin sín, Archie og Lilibet, aftur eftir margra ára aðskilnað. 

Endurfundirnir áttu sér stað á dögunum og fóru fram í einrúmi að kröfu konungsins. Express greinir nú frá því að þessir endurfundir hafi ekki verið eins innilegir og margir telja og munu hertogahjónin hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum. 

„Þau máttu ekki gera það sem þeim sýndist,“ segir blaðakonan og rithöfundurinn Angela Levin með vísan til heimildarmanna. „Harry hafði sent lista um kröfur. Hann ætlaði að gista í einni höllinni. Allt átti að vera eftir þeirra höfði. En þau fengu ekkert. Ég hugsa að þau hafi algjörlega fyrirlitið það. Það hafa átt sér stað samræður en þær hafa ekki verið hlýjar.“

Engar formlegar yfirlýsingar hafa verið gefnar út vegna endurfundanna og mun það vera að kröfu konungsins sem lítur á samband feðganna sem einkamál. Eins hafi Harry lofað föður sínum að tjá sig ekki um hvað þeim fór á milli.

Sérfræðingur í málum konungsfjölskyldunnar hefur bent á að Karl hafi krafist þess að eiginkona hans, Camilla drottning, yrði viðstödd endurfundina þrátt fyrir að Harry sé ekki hlýtt til hennar en prinsinn kallaði Camillu „vondu stjúpmóður sína“ í æviminningum sínum. Með þessu sendir Karl þau skilaboð að það verði engar sættir án Camillu. 

Það vakti athygli að Vilhjálmur Bretaprins hélt sig fjarri fundinum. Hann mun ekki vera tilbúinn til þess að grafa stríðsöxina heldur þvert á móti vera bálreiður yfir endurfundunum. Harry hafi þarna verið verðlaunaður fyrir óhollustu og grimmd í garð fjölskyldu sinnar. Réttast hefði verið að endurfundirnir hefðu farið fram á hlutlausum vettvangi, því annars væri verið að senda hertogahjónunum þau skilaboð að þau eigi afturkvæmt inn í konungshirðina.