Fókus

Barnastjarnan var heimilislaus þegar hún lést - Virði dánarbúsins kemur á óvart

Mynd

Leikkonan Daveigh Chase lést í júní, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndina The Ring. Leikkonan hafði dregið sig úr sviðsljósinu og glímdi við fíknisjúkdóm. Hún var aðeins 35 ára þegar hún lést sökum alnæmis og afleiðinga fíkniefnaneyslu. 

Sjá einnig: Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans

Þegar Daveigh lá banaleguna hóf kærasti hennar fjársöfnun á netinu og hélt því áfram eftir að leikkonan var látin. Aðrir aðstandendur barnastjörnunnar vöruðu við þessari söfnun og töldu ljóst að söfnunarféinu yrði ekki varið í útfararkostnað Daveigh eða nokkuð annað henni tengt. Nú er komið á daginn að leikkonan skildi eftir sig nóg af eignum til að standa undir útfararkostnaði og gott betur.

Þrátt fyrir að hafa glímt við heimilisleysi fyrir andlátið er dánarbú leikkonunnar metið á rúmlega 50 milljónir króna. Leikkonan var ógift, barnlaus og hafði ekki gert erfðaskrá svo það eru foreldrar hennar sem munu erfa hana.