Fókus

Vinir Sam Neill í áfalli: „Enginn bjóst við þessu“

Mynd
Sam Neill í febrúar 2025. Mynd/Getty

Andlát leikarans Sam Neill kom vinum hans, samstarfsfólki og fjölskyldu algjörlega í opna skjöldu.

Aðeins nokkrum vikum áður hafði Jurassic Park-stjarnan fagnað því að vera laus við krabbamein og talað af mikilli bjartsýni um framtíðina, ný kvikmyndaverkefni og árin sem hann vonaðist til að eiga enn eftir með fjölskyldu sinni.

Neill lést skyndilega á sjúkrahúsi í Sydney í gærmorgun, 78 ára að aldri. Í yfirlýsingu frá fjölskyldu hans kom fram að hann hefði „kvatt þennan heim með þeirri reisn sem einkenndi allt hans líf.“

Síðasta opinbera framkoma hans var á innsetningarathöfn ARIA Hall of Fame í Sydney í júní. Þar virtist hann við hestaheilsu og lýsti kvöldinu síðar sem „frábæru“ á Instagram.

Samkvæmt heimildum Daily Mail var Neill í einstaklega góðu formi síðustu vikurnar.

„Sam leið frábærlega og leit betur út en hann hafði gert mánuðum saman eftir baráttu sína við krabbameinið. Hann naut lífsins, hélt sér uppteknum við vinnu og var að lesa handrit að nýjum verkefnum. Vegna þess bjóst enginn við þessu,“ sagði ónafngreindur heimildarmaður miðilsins.

Greindist með erfitt krabbamein

Neill greindist árið 2022 með þriðja stigs blóðkrabbamein, angioimmunoblastic T-cell lymphoma. Eftir langa lyfjameðferð fékk hann svokallaða CAR-T frumumeðferð og í apríl staðfestu rannsóknir að ekkert krabbamein væri lengur að finna í líkama hans.

Hann fagnaði þeim tíðindum og sagði að tími væri kominn til að snúa aftur á hvíta tjaldið.

„Það er kominn tími á að ég geri aðra mynd,“ sagði hann.

Blóðsjúkdómalæknirinn Orly Lavee, sem annaðist Neill og varð síðar vinkona hans, sagði bata hans hafa veitt fólki um allan heim von.

„Það að Sam skyldi sigrast á þessum ágenga sjúkdómi veitti fólki víða von. Hann trúði af heilum hug á vísindin og rannsóknir sem bæta meðferð krabbameinssjúklinga. Það er aðeins ein af mörgum arfleifðum hans,“ sagði hún við Daily Mail.

Vildi 10-20 ár í viðbót

Þrátt fyrir bjartsýnina hafði Neill áður rætt opinskátt um dauðann.

„Ég er ekki hræddur við að deyja, en það myndi fara í taugarnar á mér. Mig langar mjög að fá tíu eða tuttugu ár í viðbót,“ sagði hann í viðtali árið 2023. Hann sagðist einkum vilja njóta meiri tíma með fjölskyldunni og sjá átta barnabörn sín vaxa úr grasi.

Fjölskyldan skipaði ávallt stóran sess í lífi hans. Hann átti alls fjögur börn, var líffræðilegur föður þriggja og gekk stjúpdóttur sinni í föðurstað.

Árið 1994 hitti hann elsta son sinn, Andrew, í fyrsta sinn, 25 árum eftir að hann var gefinn til ættleiðingar. Neill lýsti því í viðtali árið 2014 að á sínum tíma, þegar hann var rúmlega tvítugur, hafi hann og barnsmóðir hans ekki verið tilbúin til að verða foreldrar og því hafi þessa erfiða ákvörðun verið tekin með hagsmuni drengsins í hugsa. Eftir endurfundina byggðu þeir feðgar upp náið samband á ný og Andrew varð hluti af fjölskyldunni.

Sjá einnig: Missti af 25 árum með elsta syni sínum eftir að hafa gefið hann til ættleiðingar

Sam Neill fæddist á Norður-Írlandi árið 1947 en flutti ungur til Nýja-Sjálands. Hann varð heimsþekktur sem fornleifafræðingurinn dr. Alan Grant í Jurassic Park og sneri síðar aftur í hlutverkið í Jurassic Park III og Jurassic World Dominion. Hann kom víða við á farsælum ferli og lék í einnig í hinum vinsælu þáttum Peaky Blinders svo eitthvað sé nefnt.

Eftir andlát hans minntust Laura Dern og Steven Spielberg hans með hlýjum orðum. Spielberg sagði að Neill myndi aldrei gleymast.

„Ásamt Lauru Dern og Jeff Goldblum verðum við alltaf Jurassic-fjölskyldan. Sam mun aldrei gleymast, hvorki af okkur né milljónum aðdáenda hans um allan heim.“

Mynd