Hin tvítuga Beata Ernman Andersson er staðráðin í því að sigra heiminn. Hún ætlar þó að fara aðra leið að heimsfrægðinni en eldri systir hennar, aktívistinn Greta Thunberg.
Móðir systranna er óperusöngkonan Malena Ernmann sem meðal annars keppti í Eurovision söngvakeppninni fyrir hönd Svíþjóðar árið 2009 með lagið La Voix. Faðir systranna er leikarinn Svante Thunberg. Beata hefur ákveðið að fylgja í fótspor móður sinnar og byrjaði ung að syngja. Aðeins 12 ára gömul lék hún á móti móður sinni í söngleik um frönsku söngkonuna Edith Piaf. Undanfarin ár hefur Beata svo snúið sér að popptónlistinni en hún vinnur nú að útgáfu fyrstu plötu sinnar.
Undanfarið hafa fjölmiðlar víða um heim vakið athygli á Beatu og stillt henni upp sem andstæðu eldri systur sinnar, Gretu. Greta er mjög umdeild og á sér marga gagnrýnendur en sumir þeirra hafa tekið Beatu fagnandi með vísan til þess hversu íturvaxin Beata er, hversu djarft hún klæðir sig og svo til þess að Beata hefur sem minnst viljað tjá sig við fjölmiðla um aktívisma systur sinnar. Þessir sömu aðilar yrðu þó líklega fyrir vonbrigðum þegar nánar er að gáð, enda lítur Beata á sig sem femínista og málsvara hinsegin samfélagsins. Væntanleg plata hennar á að vera óður til frelsisins til að skilgreina sig sjálfur og til valdeflingar kvenna. Í einu væntanlegu lagi ætlar hún sér að gera grín að Donald Trump Bandaríkjaforseta. Fyrsta lagið hennar, I Found Your Father's Gun, er myndlíking um karlmann sem talar um líkama kvenmanna eins og hann eigi tilkall til þeirra.
„Karlmenn verða að hætta að notfæra sér stúlkur sem eru of ungar til að standa í lappirnar gegn þeim. Þetta er lag sem fjallar um það þegar við streitumst á móti.“
Beata kemur fram undir listamannanafninu Bea á samfélagsmiðlum en fullu nafni heitir hún Beata Mona Lisa Ernman Andersson. Fyrstu plötu sína mun hún svo gefa út undir nafninu Beata Mona-Lisa.
Nöfnin Mona og Lisa eru ekki vísun í fræga málverkið eftir DaVinci heldur vill svo skemmtilega til að amma Beatu hét Mona og langaamma hennar hét Lisa. Nafnið Beata merkir svo „hamingjusöm kona“ og Beata segist tengja það líka við málverkið fræga sem í gegnum tíðina hefur orðið tákn fyrir þögla hamingju konunnar. Hún telur nöfnin því eiga vel saman.
Beata hefur talað um það í viðtölum að hún hafi þurft að venjast því snemma að vera borin saman við eldri systur sína. Hún vonar þó að með tímanum muni draga úr þessu enda ætlar hún að skapa sér nafn sjálf og það líka á allt öðru sviði en Greta Thunberg.
„Við erum mjög ólíkir einstaklingar,“ sagði Beata í viðtali á síðasta ári. Greta Thunberg sagði sjálf í viðtali á árinu 2019 að yngri systir hennar væri hennar besti vinur.