Warner Bros hafa nú birt stiklu fyrir svörtu grínmyndina Digger sem fjallar um valdamikinn olíubarón sem ætlar að sanna að hann sé bjargvættur mannkynsins áður en umhverfishamfarir, sem hann ber ábyrgð á, tortíma heiminum. Leikstjóri myndarinnar er Alejandro G. Iñárritu og með aðalhlutverkið fer leikarinn Tom Cruise.
Stiklan hefur vakið gífurlega athygli því Tom Cruise, sem er venjulega kunnuglegt andlit í Hollywood, þykir þar óþekkjanlegur. Leikstjórinn, sem jafnframt er handritshöfundur myndarinnar, hefur greint frá því að hlutverkið hafi verið eyrnamerkt Cruise frá upphafi.
„Myndin þurfti Tom. Okkur hefur langað að vinna saman síðan um aldamótin. Ég dáðist að honum sem leikara árum saman, svo frammistaða hans kom mér ekki á óvart. Það óvænta var að uppgötva að manneskjan á bak við leikarann er alveg jafn stórbrotin og þau hlutverk sem ég hef séð hann í í gegnum feril hans. Umbreytingin sem hann fór í gegnum var stórkostleg.“
Tom Cruise var ekki lengi að hugsa sig um þegar honum var boðið hlutverkið, enda hefur hann verið aðdáandi Iñárritu.
„Ég hugsaði bara: Þessi gaur er með hreðjar og bara, ég get ekki beðið. Keyrum þetta í gang.“
Sjón er sögu ríkari, en stikluna má finna hér.