Fókus

Hættulegt TikTok-trend sendir börn á sjúkrahús með alvarleg brunasár

Mynd
Ungur sonur Whitney Grub hlaut alvarleg brunasár þegar hann setti leikfangið í örbylgjuofn.

Læknar og slökkviliðsyfirvöld í Bandaríkjunum vara nú foreldra við hættulegri samfélagsmiðlaáskorun sem tengist hinum vinsælu leikföngum NeeDoh Cube.

Samkvæmt umfjöllun VT.co hafa nokkur börn hlotið alvarleg brunasár eftir að hafa sett leikföngin í örbylgjuofn í þeirri trú að þau yrðu mýkri og skemmtilegri í notkun.

Leikföngin, sem eru framleidd af fyrirtækinu Schylling, eru mjúk þrýstileikföng sem eiga að draga úr streitu og örva skynjun.

Þrátt fyrir að skýrt sé tekið fram á umbúðum að þau megi hvorki hita né frysta hefur myndböndum fjölgað á samfélagsmiðlum þar sem börn eru hvött til að hita þau í örbylgjuofni.

Yfirvöld segja að það geti haft alvarlegar afleiðingar. Þegar leikföngin ofhitna geti þau sprungið og slett út brennheitu innihaldi sem valdi miklum brunasárum.

Slökkviliðs- og brunamálayfirvöld í Nassau-sýslu í New York hafa lýst áskoruninni sem „gríðarlega hættulegri“ og vara við því að hún geti valdið alvarlegum meiðslum eða jafnvel dauða.

Samkvæmt yfirvöldum hafa börn víða um heim hlotið annars og þriðja stigs bruna í andliti eftir að leikföngin sprungu. Þar á meðal er barn í Nassau-sýslu sem hlaut annars og þriðja stigs brunasár.

ABC greindi einnig frá máli níu ára drengs í Chicago sem fékk annars stigs bruna þegar NeeDoh Cube sprakk framan í hann.

„Hægri hlið andlitsins á honum var í rauninni eins og hún væri að bráðna,“ sagði móðir hans, Whitney Grub, í viðtali í febrúarmánuði.

Í tilkynningu frá slökkviliðsyfirvöldum segir að leikföng séu ætluð til notkunar samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og að það sé stórhættulegt að hita þau í örbylgjuofni, ofni eða á eldavél.

Foreldrar og aðrir forráðamenn eru jafnframt hvattir til að fylgjast vel með börnum í eldhúsinu þar sem þau geri sér oft ekki grein fyrir þeirri hættu sem geti skapast.

Dr. Alicia Webb, barnalæknir á bráðamóttöku Children's of Alabama, segir mikilvægt að foreldrar fylgist með samfélagsmiðlaáskorunum sem höfða til barna.

„Foreldrar þurfa að vera meðvitaðir um þessa þróun og aðrar hættulegar áskoranir á samfélagsmiðlum því þær geta skapað börnum verulega hættu. Börn hafa ekki enn þann þroska sem þarf til að átta sig á afleiðingunum,“ sagði hún í samtali við New York Post.

Dr. Michael Cooper, yfirmaður brunadeildar Staten Island University Hospital, bendir á að húð barna sé sérstaklega viðkvæm.

„Jafnvel mjög stutt snerting við heitt efni getur valdið verulegum vefjaskaða,“ segir hann.

Læknarnir vara einnig við því að alvarleg brunasár geti skilið eftir varanleg ör og aflögun sem í sumum tilfellum krefjist húðígræðslu og langvarandi sérhæfðrar meðferðar. Auk þess geti slíkur áverki haft sálræn áhrif sem vari lengi eftir að sárin hafa gróið.

Framleiðandinn Schylling segir öryggi neytenda vera í forgangi og ítrekar að NeeDoh-leikföng eigi aldrei að hita eða frysta.

Í yfirlýsingu fyrirtækisins, sem VT.co vitnar til, kemur fram að það sé miður að samfélagsmiðlar hafi ýtt undir hættulega misnotkun á vörunum. Fyrirtækið segist hafa unnið með samfélagsmiðlafyrirtækjum að því að láta fjarlægja myndbönd sem hvetji til slíkrar notkunar og hafi jafnframt bætt við áberandi öryggisviðvörunum á umbúðirnar.