Króatíski áhrifavaldurinn Ava Karabatic hefur hneykslað fylgjendur sína með því óska eftir framlögum til þess að hún komist í sumarfrí til Maldiví eyja og fyrir brjóstastækkun.
„Það hefur alltaf verið draumur minn að komast til Maldiví eyja og ég hef enn þá ekki farið,“ segir Karabatic, áhrifavaldur frá Split í Króatíu sem varð fræg fyrir að taka þátt í raunveruleikasjónvarpsþáttunum Big Brother, í færslu á Instagram. En Maldiví eyjar eru eyjaklasi vestan við Indland.
15 þúsund evrur
Bað hún fylgjendur sína um að senda sér pening, alls 15 þúsund evrur. Það er rúmlega 2,1 milljón króna eins og breska blaðið The Daily Star greinir frá. Inn í þessari summu er reyndar líka brjóstastækkunaraðgerð.
„Kæru vinir. Hjálpið mér að komast til Maldiví eyja og til að fá stærri brjóst,“ segir Karabatic.
Gaf hún upp númerið á bankareikningnum sínum til þess að fólk gæti millifært beint þangað inn. Sagði hún sérstaklega mikilvægt að hún fengi nýja púða í brjóstin. Hún hafi fengið púða fyrir 20 árum síðan en þeir myndu ekki duga að eilífu.
„Hver einasti dagur er áhætta fyrir mig því að örplastið er hægt og rólega að eitra líkama minn,“ segir Karabatic sem er 38 ára gömul.
Hreinskilin
Hefur áhrifavaldurinn fengið mikla gagnrýni fyrir færsluna og saka margir hana um að betla fyrir óþarfa hlutum. Karabatic hefur hins vegar svarað þeirri gagnrýni og sagt að hún sé einfaldlega ekki vön því að vinna venjuleg störf. Hún hafi ávallt fengið hluti upp í hendurnar og kunni ekki annað.
„Ef þið eruð að spá í því hvort þið séu að fá nokkuð fyrir peninginn þá er það vitaskuld svo, því að ég mun birta djarfari myndir af mér með nýju brjóstunum. Ég veit að þið munuð ekki valda mér vonbrigðum,“ segir Karabatic. „Ég er að minnsta kosti hreinskilin. Ég gæti skrifað að ég þyrfti pening fyrir mat og til að lifa af en af hverju að ljúga?“