Fókus

Þetta eru þrír klikkuðustu hlutirnir sem Íris Líf hefur gert til að spara

Mynd
Íris Líf. Mynd: Facebook.

Íris Líf Stefánsdóttir bókari hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir hin ýmsu sparnaðarráð þegar kemur að rekstri heimilisins.

Þrír hlutir sem ég hef gert til að spara pening sem að þér gætu fundist klikkaðir er yfirskrift nýjasta myndbands hennar. 

„Númer eitt er að ég hef gist mjög margar nætur á flugvöllum til þess að þurfa ekki að borga fyrir hótel.  Númer tvö er að ég hef mjög oft borðað afganga á diskum hjá fólki sem ég þekki ekki neitt.“

Segir Íris Líf að hún hafi unnið sem þjónn í mörg ár og þá mjög oft borðað afganga þegar hún var að fara með diskana inn í eldhús, „í staðinn fyrir að þurfa að kaupa mér mat.“

„Og númer þrjú finnst mér klikkað að öðrum finnist klikkað en það er að ég hef fengið nær öll húsgögnin mín gefins á Gefins allt gefins á Facebook. Þvílíka snilldarsíða. Sófa, við erum að tala um rúm, stofuborð, við erum að tala um ísskáp. Mjög mikið af dóti. Mér finnst mjög skrítið að þetta sé skrítið. Þetta sparar manni ógeðslega mikið pening.“

Segir Íris Líf að hana langi að heyra hvað er það klikkaðasta sem fylgjendur hennar hafa gert til að spara pening.