Fókus

Steiney frumsýndi kærastann

Mynd
Steiney og Helgi. Mynd: Instagram.

Steiney Skúladótti, leik-, tónlistar- og fjölmiðlakona, frumsýndi  kærastann, Helga Egilsson, í einlægri færslu á Instagram í gær:

„Helgi er 40 ára í dag. Hann gerir heiminn svo miklu skemmtilegri. Alltaf til í grín og ævintýri en líka að hlusta og staldra við,“ skrifar Steiney og birtir nokkrar myndir af parinu erlendis, við tónlistarsmíði og á gönguskíðum.

„Ég klíp mig reglulega að hugsa að ég fái að eyða öllum þessum tíma með svona hjartahlýjum, skemmtilegum, orkumiklum og klárum manni. Ef þið eruð á Egilsstöðum eða Seyðisfirði og sjáið hann gefið honum knús.“ 

Steiney er menntuð spunaleikkona og hlaut Edduverðlaun fyrir þættina Framapot, hún er meðlimur Reykjavíkurdætra, sem meðal annars tóku þátt í Söngvakeppninni árið 2022 og í sumar er hún einn umsjónarmanna Hljóðvegur 1 á Rás 2. Helgi er tónlistarmaður, var í Fjallabræðrum og hljómsveitinni Urmull & Kraðak, einnig er hann klifurkappi.