Fókus

Missti af 25 árum með elsta syni sínum eftir að hafa gefið hann til ættleiðingar

Mynd
Sam Neill í einu sínu þekktasta hlutverki í Jurassic Park. Mynd/Getty

Leikarinn góðkunni Sam Neill, sem lést á mánudag 78 ára að aldri, talaði oft um að ein stærsta eftirsjáin í lífi hans hefði verið að missa af uppvexti elsta sonar síns, Andrews, sem hann gaf til ættleiðingar þegar hann var rétt um tvítugur.

Fjölskylda leikarans hans greindi frá andláti Neills í morgun og sagði það hafa verið skyndilegt og óvænt. Hann greindist með krabbamein fyrir nokkrum árum en í apríl síðastliðnum var greint frá því að hann væri laus við meinið.

Í yfirlýsingu fjölskyldunnar kom fram að Neill hafi verið umkringdur ástvinum sínum þegar hann lést og hann hafi kvatt með þeirri reisn sem einkenndi allt hans líf.

Sjá einnig: Leikarinn Sam Neill er látinn

Neill kom víða við á ferli sínum í leiklist en einna þekktastur er hann fyrir að hafa leikið dr. Alan Grant í Jurassic Park. Þá lék hann í myndum á borð við The Hunt for Red October og Event Horizon svo örfáar séu nefndar. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn.

Ræturnar á Norður-Írlandi

Þótt Sam Neill hafi verið þekktastur fyrir að vera einn fremsti og þekktasti leikari Nýja-Sjálands lágu rætur hans í Tyrone-sýslu á Norður-Írlandi.

Faðir Neills, sem var frá Nýja-Sjálandi, gegndi herþjónustu sem liðsforingi í írsku varðsveitinni (Irish Guards) í bænum Omagh þegar Sam fæddist árið 1947.

Hann bjó á Norður-Írlandi þar til hann var sjö ára gamall, þegar fjölskyldan flutti til Nýja-Sjálands. 

Þegar Neill var ungur eignaðist hann soninn Andrew og tóku foreldrarnir ungu þá erfiðu ákvörðun að gefa hann frá sér til ættleiðingar. Neill gætti þess ávallt vel að vernda friðhelgi móður Andrews og hefur nafn hennar aldrei komið fram opinberlega.

Var ekki tilbúinn í föðurhlutverkið

Í viðtölum sem Neill veitti lýsti hann því að hann hefði ekki verið tilbúinn í föðurhlutverkið og hitti hann ekki son sinn að nýju fyrr en um 25 árum eftir að hann kom í heiminn.

Í viðtali við The Times árið 2014 rifjaði Neill upp þessa einstöku sögu.

„Fyrsti sonur minn, Andrew, var gefinn til ættleiðingar þegar hann var mjög lítill. Ég var sjálfur líka mjög ungur, rétt rúmlega tvítugur. Ég sá hann ekki í 25 ár og síðan fórum við að leita hvor að öðrum,“ sagði hann.

Neill sagði endurfundina hafa verið allt öðruvísi en kvikmyndir og sjónvarpsþættir gefa oft til kynna.

„Svona endurfundir eru gjarnan sýndir sem mjög tilfinningaþrungnir og dramatískir, en það var ekkert slíkt hjá okkur. Enginn grét í faðmi hins. Þetta var einfaldlega miklu þroskaðra,“ sagði hann.

Reynslan breytti sýn hans á lífið og foreldrahlutverkið.

„Maður er hæfari en maður heldur. Ef ég gæti gefið sjálfum mér eitt ráð þegar ég var tvítugur, þá væri það þetta.“

Fjölskyldan alltaf það mikilvægasta

Þegar þeir feðgar hittust aftur árið 1994 hafði Neill eignast þrjú önnur börn. Hann eignaðist soninn Tim með fyrri eiginkonu sinni, leikkonunni Lisu Harrow, og síðar dótturina Elenu með seinni eiginkonu sinni, förðunarfræðingnum Noriko Watanabe. Hann gekk jafnframt dóttur hennar, Maiko, í föðurstað.

Neill sagði fjölskylduna alltaf hafa verið það mikilvægasta í lífi sínu, þótt leiklistarferillinn hefði oft gert það að verkum að hann var mikið fjarri fjölskyldu sinni. Hann viðurkenndi að fjarvera vegna vinnu hefði stundum reynst erfið, en sagðist hafa reynt að verja eins miklum tíma með börnum sínum og kostur var.

Síðar á ævinni sagði hann að það að verða afi hefði verið eitt það besta sem fyrir hann hefði komið. Hann átti átta barnabörn og talaði oft um hversu mikið hann hlakkaði til að fylgjast með þeim vaxa úr grasi.

Andlát Neills kom mörgum á óvart en eins og fram kemur hér að framan var greint frá því í apríl að hann væri laus við eitilfrumukrabbamein sem hann hafði greinst með. Banamein leikarans hefur ekki verið gert opinbert.