Fókus

Leikarinn Sam Neill er látinn

Mynd
Sam Neill í febrúar 2025. Mynd/Getty

Nýsjálenski leikarinn Sam Neill er látinn, 78 ára að aldri. Neill lést umvafinn fjölskyldu sinni í Sydney í Ástralíu í morgun að áströlskum tíma.

Í yfirlýsingu frá fjölskyldu leikarans kemur fram að andlátið hafi borið brátt að og komið öllum á óvart.

Neill hafði greinst með eitlakrabbamein fyrir nokkrum árum, en í apríl síðastliðnum var greint frá því að hann væri laus við meinið eftir að hafa gengist undir meðferð.

Þótt Sam Neill hafi verið þekktastur fyrir að vera einn fremsti og þekktasti leikari Nýja-Sjálands lágu rætur hans í Tyrone-sýslu á Norður-Írlandi.

Faðir Neills, sem var frá Nýja-Sjálandi, gegndi herþjónustu sem liðsforingi í írsku varðsveitinni (Irish Guards) í bænum Omagh þegar Sam fæddist árið 1947.

Hann bjó á Norður-Írlandi þar til hann var sjö ára gamall, þegar fjölskyldan flutti til Nýja-Sjálands. Hann sneri þó aftur að rótum sínum þegar hann var ráðinn í hlutverk lögreglustjórans í Belfast í þáttaröð BBC, Peaky Blinders, árið 2013.

Neill sagði þá að norður-írski hreimurinn hefði verið „barinn úr sér“ af bekkjarfélögum sínum í Nýja-Sjálandi og að hann hefði þurft að leita til vina sinna og leikaranna James Nesbitt og Liam Neeson til að læra hreiminn á ný fyrir hlutverkið.

Neill kom víða við á ferli sínum í leiklist en einna þekktastur er hann fyrir að hafa leikið dr. Alan Grant í Jurassic Park. Þá lék hann í myndum á borð við The Hunt for Red October og Event Horizon svo örfáar séu nefndar. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn.