Fókus

Jazzinn dunar í ágúst - Uppskeruhátíð íslensks jazztónlistarfólks

Mynd
Mynd: Hans Vera.

Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25.–30. ágúst 2026. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1990 og er einn helsti vettvangur jazztónlistar á Íslandi. Hún hefur oft verið kölluð uppskeruhátíð íslensks jazztónlistarfólks og sameinar ár hvert fremstu innlendu flytjendur ásamt áhugaverðum gestum erlendis frá.

Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarfólki og jazzunnendum framúrskarandi vettvang þar sem hægt er að flytja og njóta þess besta sem gerist í íslenskri og alþjóðlegri jazztónlist. Jafnframt vinnur hátíðin markvisst að því að skapa íslensku jazztónlistarfólki tækifæri á alþjóðavettvangi í gegnum samstarf sitt við European Jazz Network, sem Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið aðili að um árabil.

Á hátíðinni í ár verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá með tónleikum og viðburðum á ólíkum stöðum um borgina. Kvölddagskrá á hátíðinni í ár fer fram á nokkrum stöðum, Fantasíu, Hörpu, Austurbæjarbíói og Iðnó þar sem kvöldpassi er í boði og veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki verður selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá Jazzhátíðar. Að auki er hægt að kaupa jazzhátíðarpassa sem gildir á alla viðburði hátíðarinnar. Meðal hápunkta verða þakkargjörðartónleikar tileinkaðir Tómasi R. Einarssyni, einum áhrifamesta jazzbassaleikara og tónskáldi landsins. Þar munu hann, samstarfsfólk hans og vinir flytja verk hans og fagna einstöku framlagi hans til jazzsenunnar. Tónleikarnir fara fram í Óháða söfnuðinum sunnudaginn 30. ágúst kl. 16.

Mynd
Mynd: Hans Vera.

Í framhaldi af því má nefna tónleikana Havanablús, þar sem Los Bomboneros flytja verk Tómasar R. Einarssonar í stórsveitarútsetningum í Hörpu miðvikudaginn 26. ágúst kl. 21. Eins og nafnið gefur til kynna býður hljómsveitin til sannkallaðrar veislu þar sem reynir á burðarþol dansgólfs Norðurljósa. Að þessu sinni verður tónlist latínbóndans Tómasar R. sveipuð stórsveitarbúningi. Fagnað verður útgáfu nýrrar stórsveitartónlistar í síðustu sólargeislum sumarsins með almennilegum mjaðmahnykk. Mugison og Bogomil Font verða einsöngvarar á tónleikunum og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir stjórnar hljómsveitinni.

Mynd
Mynd: Hans Vera.

Á dagskrá verður einnig sérstakur tónleikaviðburður tileinkaður Grindavík, Elegy for Grindavík. Verkið er eftir Maciej Fortuna fyrir fiðlu og trompet og var samið sérstaklega fyrir Jazzhátíð Reykjavíkur, þar sem það verður frumflutt. Tónleikarnir fara fram laugardaginn 29. ágúst kl. 17 í Fríkirkjunni í Reykjavík.

Líkt og undanfarin ár verður sérstök áhersla lögð á unga tónlistarmenn. Í samstarfi við MÍT (Menntaskóli í tónlist) mun stórsveit skólans ásamt söngvurum flytja verk systkinanna Ellyjar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar. Tónleikarnir fara fram í Iðnó sunnudaginn 30. ágúst kl. 18 og er aðgangur ókeypis.

Mynd
Mynd: Hans Vera.

Að auki mun Stórsveit Vesturbæjar- og Miðbæjar halda tónleika í Sundlaug Vesturbæjar sunnudaginn 30. ágúst kl. 12. Viðburðurinn er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu og er hluti af dagskrá Sundlaugasumars 2026, verkefnis sem var sett á laggirnar í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Hátíðin tekur einnig á móti fjölbreyttum erlendum gestum sem endurspegla grósku evrópskrar jazztónlistar og skapa ný tækifæri til samstarfs milli íslenskra og erlendra listamanna.

Mynd
Mynd: Hans Vera.

Viðburðir hátíðarinnar fara fram á fjölmörgum stöðum í Reykjavík, meðal annars í Hörpu, Fantasíu (Vinnustofu Kjarvals), Jómfrúnni, Sundlaug Vesturbæjar, Óháða söfnuðinum, Austurbæjarbíói, Hannesarholti, Iðnó, Fríkirkjunni í Reykjavík, Hafnartorg Gallery, MÍT og Alliance Française.

Þetta undirstrikar markmið hátíðarinnar um að gera jazztónlist aðgengilega sem flestum. Hátíðin er einnig í samstarfi við Þjóðgarðinn á Þingvöllum þar sem boðið verður upp á tónleika fimmtudaginn 27. ágúst kl. 12.

Stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur vill að lokum leggja áherslu á þá miklu grósku sem ríkir í íslensku jazztónlistarsenunni. Hátíðin endurspeglar þá fjölbreytni, sköpunarkraft og alþjóðlegu tengingar sem einkenna íslenskan jazz í dag. Tónlistarfólk og stjórnendur hlakka til að taka á móti gestum, fagna saman og njóta sex daga af framúrskarandi jazztónlist á Jazzhátíð Reykjavíkur dagana 25.–30. ágúst 2026.

Heildardagskrá hátíðarinnar má finna á reykjavikjazz.is/dagskra2026 og miðar eru fáanlegir á tix.is og harpa.is.