Fókus

Íslenskt fyrirtæki nýtir gervigreind til að gera eina rosalegustu auglýsingu ársins

Mynd

Íslenskt fyrirtæki nýtti sér gervigreindina til hins ítrasta til að vekja athygli á fyrirtækinu. Það tókst svo sannarlega því 65 þúsund áhorf eru á auglýsinguna þær þrjár vikur sem hún hefur verið á Facebook-síðu fyrirtækisins og 329 hafa látið sér líka við hana. Og það þrátt fyrir að fyrirtækjasíðan sé aðeins með 514 fylgjendur.

Auglýsingin er ein af þeim auglýsingum sem sýnir enga skýra tengingu við það sem auglýst er fyrir utan að sjá nafn fyrirtækisins tvisvar í henni. Innblástur er sóttur í eldgos og Hringadróttinssögu, en ólíkt upprunalegri sögu J. R. R. Tolkien eru það víkingar sem ferðast með hringinn. 

Mynd

Sólfarið, Hallgrímskirkja og Harpa eru á meðal þekktra kennileita, en vonandi munu ferðamenn ekki fara eftir myndbandinu þegar ferðast er um miðbæinn, þar sem honum hefur aldeilis verið breytt í auglýsingunni. 

Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan, en hún er á vegum Rúllan málningarþjónusta ehf. Auglýsinguna má einnig sjá hér.