Fókus

Hvað er fyrrverandi eiginmaður Kim Kardashian að gera í dag?

Mynd

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian á þrjá fyrrverandi eiginmenn. Sá þekktasti þeirra er rapparinn Kanye West, sem jafnframt er barnsfaðir hennar. Fyrsti eiginmaður hennar var tónlistarframleiðandinn Damon Thomas sem var giftur Kardashian frá árinu 2000 til 2004. Færri muna eftir eiginmanni númer tvö, sem er kannski engin furða þar sem Kardashian og körfuboltamaðurinn Kris Humphries voru aðeins gift í 72 daga.

En hvað er Humphries að gera í dag? US Sun greinir frá því að Humphries hafi nú lagt körfuboltaskóna á hilluna og snúið sér að veitingabransanum. Hann rekur nú keðju sem kallast Dave's Hot Chicken í Minnesota.

„Síðan ég setti skóna á hilluna hef ég reynt að halda mig utan sviðsljóssins og vinna að nýjum kafla í lífi mínu,“ sagði Humphries við miðilinn.

Hann hætti í körfuboltanum árið 2017 og sneri svo aftur heim til Minnesota þar sem hann opnaði fyrsta Dave's Hot Chicken árið 2023. Þetta ævintýri hefur heldur betur borgað sig og skrifaði Humphries undir samning í september um að opna allt að 30 staði víðs vegar um ríkið.