Karlmaður leitaði til sambandsráðgjafa breska blaðsins The Sun vegna vandamáls sem hann stendur frammi fyrir í hjónabandinu. Maðurinn sem um ræðir er 44 ára og eiginkona hans 46 ára.
„Að fara í kynlífspartý hafði alltaf verið draumur okkar – en þegar ég og konan mín létum loks verða af því endaði það með algjörum ósköpum,” segir maðurinn í upphafi erindis síns sem birtist í hinum vinsæla dálki Dear Deidre.
Maðurinn segir að eiginkonan vilji ólm fara í næsta partý en eftir síðustu reynslu hans muni hann aldrei stíga fæti inn á slíkan stað aftur.
Fyrir þá sem ekki vita eru swing-partý samkoma þar sem pör og einstaklingar hittast með það að markmiði að stunda kynlíf eða önnur kynferðisleg samskipti við aðra þátttakendur með samþykki allra sem eiga í hlut.
Maðurinn segir að eiginkona hans hafi skemmt sér konunglega og bætir hann við að það hafi „bókstaflega verið röð af körlum“ sem vildu eiga samneyti við hana.
„Ég endaði hins vegar með konu sem mér fannst ekkert sérstaklega aðlaðandi. Hún var þakin götum, sem fór alveg í taugarnar á mér, og þegar hún kyssti mig festust varahringirnir hennar sífellt í mér. Það dró algjörlega úr allri löngun,” segir maðurinn og bætir svo við:
„Eins og það væri ekki nóg klóraði hún bakið á mér svo illa meðan við stunduðum kynlíf að það var allt útklórað á eftir. Ég horfði reglulega yfir salinn og sá konuna mína njóta athyglinnar frá mörgum körlum. Eftir fyrstu klukkustundina var ég kominn með nóg, en hún vildi endilega vera þar til partýið var búið.”
Maðurinn segir að þau hjónin hafi verið saman í nokkur ár og þau hafi bæði verið í hjónabandi áður. Þau eiga samtals þrjú börn úr fyrri samböndum og hafa þau aðra hverja helgi út af fyrir sig þegar börnin eru hjá fyrrverandi mökum.
„Við höfum sannarlega notið þess nýfengna frelsis, en hvað kynlífspartýið varðar myndi ég helst vilja gleyma þessari reynslu,” segir hann.
Hann segist hafa mætt skilningsleysi þegar hann sýndi eiginkonu sinni klórförin á bakinu og hún hafi raunar bara hlegið.
„Það eina jákvæða sem kom út úr þessu er að kynhvöt hennar hefur aukist gríðarlega og hún getur varla tekið hendurnar af mér. Ég vil ekki eyðileggja stemninguna hjá henni, en hvernig á ég að segja henni að ég hafi engan áhuga á að fara aftur?
Ráðgjafinn svarar:
„Það eiga allir rétt á að hafna kynferðislegri athöfn sem þeim líður illa með og það gerir engan að leiðindapésa. Finndu rólega stund til að ræða við konuna þína – helst ekki inni í svefnherberginu – og segðu henni hreinskilnislega hvernig þér leið í kynlífspartýinu.
Sú staðreynd að hún hló þegar þú sýndir henni klórförin bendir til þess að hún geri sér ekki fyllilega grein fyrir því hversu erfið reynslan var fyrir þig.
Segðu henni að þú hafir áhuga á að prófa aðrar leiðir til að krydda kynlífið.
Mörg pör hafa gaman af því að fantasera um að opna sambandið án þess að láta það verða að veruleika.
Stundum getur það eitt að ræða slíkar hugmyndir verið nóg til að blása nýju lífi í sambandið.
Leitaðu með henni að öðrum leiðum til að halda spennunni og styrkja nándina ykkar.“