Fókus

Halla tók á móti Jewel – „Tónlist Jewel hefur oft bjargað sálu minni“

Mynd
Jewel og Halla. Mynd: Facebook.

Bandaríska tónlistarkonan Jewel er stödd hér á landi og í dag hitti hún Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.  Jewel hefur verið tilnefnd til fernra Grammy-verðlauna og selt yfir 30 milljónir hljómplatna. Hún er þekkt fyrir lög eins og Foolish Games og Who Will Save Your Soul.

Á Facebook-síðu sinni segir Halla að samræðurnar við Jewel hafi verið dýrmætar: 

„Við deilum trú á mikilvægi þess að hlúa að líðan barna og ungs fólks og skapa þeim aðstæður þar sem þau geta blómstrað. Það var afar áhugavert að heyra meira um það öfluga starf sem hún og Inspiring Children Foundation standa að í þágu barna og ungs fólks.“

Halla hefur lengi verið aðdáandi tónlistarkonunnar: 

„Tónlist Jewel hefur oft bjargað sál minni, svo ég hef lengi verið aðdáandi hennar. Eftir samtal dagsins dáist ég enn meira að henni sem manneskju og þeirri hugsjón sem hún vinnur að. Ég finn að þetta er aðeins upphaf að stærra samtali.“