Nýjasta dramað í heimi raunveruleikasjónvarps hljómar eins og söguþráðurinn í rómantískri Hollywood-mynd. Framleiðandinn sem á að hjálpa piparsveini við ástarleitina en fellur svo fyrir honum sjálf. Þetta gerðist víst við tökurnar á 24. þáttaröð Bachelor þegar framleiðandinn Julie LaPlaca átti í laumulegu ástarsambandi við piparsvein þáttaraðarinnar, Peter Weber.
LaPlaca fjallar um þetta ástarævintýri í endurminningum sínum: The Love Producer: My Unscripted Journey from a Reality TV Career to My Own Happily Ever After.
Sögusagnir hafa gengið árum saman um að LaPlace og Weber hafi átt í leynilegu ástarsambandi sem hófst við töku þáttanna. LaPlaca segir að þau hafi orðið náin á tökustaðnum eftir að hafa varið klukkustundum í að spjalla saman á innilegum nótum um hjónaband, fjölskyldu og framtíðardrauma. Eftir að tökum lauk varð nándin líkamleg þar sem framleiðandinn og piparsveinninn hittust á laun.
LaPlaca hefur nú opnað sig um leynisambandið og gerir það í óþökk Weber sem segist ítrekað hafa beðið hana um að halda samskiptum þeirra leyndum. Sambandið byrjaði að þróast við tökur þáttanna en varð þó ekki líkamlegt fyrr en þættirnir voru komnir í sýningu en þá hafði Weber þegar slitið trúlofun sinni við sigurvegara þáttaraðarinnar, Hönnuh Ann Sluss.
Um tíma leit út fyrir að LaPlaca yrði sjálf piparjónka í þáttunum en dagurinn sem sá draumur varð að engu var dagurinn sem hún og Weber sváfu saman í fyrsta sinn.
Segja má að Peter Weber hafi fengið eins mikið út úr þátttöku sinni í Bachelor og hann mögulega gat. Hann trúlofaðist Sluss en tók saman við Madison Prewett, sem lenti í öðru sæti í þáttunum, eftir að slitnaði upp úr trúlofuninni. Eins mun hann hafa átt einnar nætur gaman með konunni sem hafnaði í þriðja sæti sem og konunni sem endaði í fimmta sæti. Og svo svaf hann ítrekað hjá LaPlace, framleiðanda þáttanna.
LaPlaca segir í bók sinni að hún hafi borið raunverulegar tilfinningar til piparsveinsins og því hafi það verið særandi að frétta af því þegar hann fór að slá sér upp með öðrum konum í þáttunum.
„Ég var gjörsamlega niðurbrotin. Niðurlægð, skömmustuleg og með brotið hjarta. Ég var svo reið út í sjálfa mig fyrir að hafa verið svona vitlaus. Hvernig gat maður sem ég þekkti betur en nokkurn annan leikið svona á mig? Sárast var að hann sagði mér ekki frá neinu af þessu. Við áttum í undarlegu sambandi þar sem við sváfum saman á milli þess sem ég huggaði hann vegna Madison. Fyrst ég gat höndlað það sem vinur hefði maður haldið að hann gæti að minnsta kosti haft þá sómatilfinningu að hringja eða senda mér skilaboð um að hann væri að hitta aðrar konur.“
Weber hefur harðlega gagnrýnt bókina. Vissulega taki hann ábyrgð á hegðun sinni en ástarsamband hans og LaPlace hafi ekki verið hluti af þáttunum og þar með ekki hluti af því sem hann mátti ætla að yrði gert opinbert. Hann segist ítrekað hafa beðið hana um að halda sambandi þeirra leyndu. Eins fordæmir hann stjórnanda Bachelor þáttanna, Chris Harrison, fyrir að hafa skrifað innganginn að bókinni.
„Ég er forvitinn að vita hvort hún minnist á það í bókinni þegar ég var á síðasta einkafundinum með Hannah Ann (sigurvegara þáttaraðarinnar) og Julie sagði við mig í miðjum kvöldverðinum, í viðtali við framleiðanda: „Þú munt líta út eins og mesti hálfviti í heimi í augum Bandaríkjanna ef þú gefur henni rós þína“. Mér finnst rangt að hræra svona í hugarástandi manneskju og skrifa svo bók um hana. Sú staðreynd að Chris studdi þetta gerir mig veikan.“
Móðir Peter hefur nú kallað eftir því að sonur hennar verði leystur undan trúnaðarsamningi (NDA) svo hann geti svarað skrifum framleiðandans.