Fókus

Kathy Griffin frumsýnir nýja kærastann – Aldursmunurinn er sláandi

Mynd
Ekki kemur fram hvað hinn ungi maður heitir. Myndir/Instagram

„Hann er 22 ára. Hafðu það internet,“ segir grínistinn Kathy Griffin í færslu á samfélagsmiðlum. Ekki kemur fram hvað maðurinn heitir eða hvað hann gerir.

Griffin, sem hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátt í gegnum tíðina, er 65 ára gömul. Aldursmunurinn er því 43 ár.  Griffin er einni þekktur uppistandari og kom meðal annars fram í Eldborgarsal Hörpu árið 2017.

Ekki eru nema tveir mánuðir síðan Griffin birti mynd af sér með öðrum nýjum kærasta, en sá virtist vera mun nærri henni í aldri.

„Við erum á föstu á instagram. Takist á við það,“ sagði Griffin í færslu í maí. En þeirri ljósmynd hefur þegar verið eytt af samfélagsmiðlareikningum hennar. Lítur því út fyrir að það hafi verið skammlíft samband.

Ef marka má viðbrögð aðdáenda Griffin á samfélagsmiðlum eru þeir himinlifandi með hina nýfundnu ást. 

„Njóttu. Bara ekki tala um sjónvarpsþætti eða tónlist,“ sagði einn.

„Náðu því mamma,“ sagði annar.

Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skipti sem Griffin er í sambandi með mun yngri manni. Í desember síðastliðnum greindi hún frá því að vera í sambandi með 23 ára manni.

„Ég varð óvart ástfangin af 23 ára manni,“ sagði hún í færslu. En það var skömmu eftir skilnað hennar frá leikaranum Randy Bick.