Fókus

„Við erum með Skandal og svo Ásgeir með kassagítar“

Mynd
Bræðslustjórarnir og bræðurnir Guðmundur Magni og Áskell Heiðar Ásgeirssynir.

Það eru aðeins nokkrar vikur í að gamla síldarbræðslan á Borgarfirði eystri fyllist á ný af tónlist, gestum og þeirri stemningu sem hefur gert Bræðsluna að einni ástsælustu tónlistarhátíð landsins. Þótt hátíðin hafi vaxið jafnt og þétt frá stofnun hennar árið 2004 segir einn skipuleggjenda hennar að uppskriftin hafi í raun lítið breyst.

Magni Ásgeirsson, einn stofnenda og skipuleggjenda Bræðslunnar, var í viðtali við hlaðvarpið Popparasögur þar sem hann ræddi um hátíðina og dagskrána í ár.

„Þetta konsept eins og þetta er núna, þessi umgjörð, hún er búin að vera meira og minna alveg eins í einhver fimmtán ár. Fyrstu fimm árin vorum við aðeins að prófa okkur áfram, færa sviðið og klára alls konar fíniseringar. En síðan þá er þetta bara að opna húsið og gera það sem við gerðum síðast,“ segir Magni.

Undirbúningurinn stendur nú sem hæst. „Við erum bara að raða hótelskipulaginu, vera viss um að það sé búið að bóka öll flug og bíla og athuga hvort tæknimennirnir séu ekki með allt á hreinu. Svo mætum við viku fyrr og byrjum að smíða sviðið og græja húsið.“

Mynd

Gömul bönd snúa aftur

Dagskrá Bræðslunnar í ár einkennist af hljómsveitum sem hafa skilið eftir sig djúp spor í íslenskri tónlistarsögu. Greifarnir fagna 40 ára afmæli, Land og synir koma saman á ný eftir langt hlé og hin goðsagnakennda hljómsveit Sólstrandargæjarnir, sem slógu í gegn með laginu Rangur maður, snýr aftur á svið. Þá verða einnig Ásgeir, Skandall og Raven

Að baki dagskránni liggur þó engin tilviljun. „Það er bókstaflega til Excel-skjal. Við erum búin með line-up á næstu þremur Bræðslum í hausnum. Það er legacy-slottið, nýja slottið, krúttslottið, þetta þarf allt að tikka í boxin sem við viljum hafa,“ útskýrir Magni varðandi það hvernig þeir setja upp dagskrá hátíðarinnar á hverju ári.

Markmiðið er að allir finni eitthvað við sitt hæfi. „Það hlýtur að vera eitt fyrir þennan árgang og eitt fyrir þennan árgang, eitt gott sveitaballaband og eitthvað nýtt upcoming-atriði. Við erum með 40 ára gamla Greifa og 30 ára gamla Land og syni. Við erum með Skandal og svo Ásgeir með kassagítar. Þetta tikkar í fullt af boxum.“

Sólstrandargæjarnir loks á leiðinni

Ein endurkoman sem skipuleggjendur hafa beðið lengi eftir er Sólstrandargæjarnir. „Ég er búinn að liggja í Jónasi í mörg ár. Fyrst var þetta eitthvað: „Kannski tökum við tvö lög.“ Svo var þetta: „Kannski verðum við leyniatriði.“ Núna eru þeir bara orðnir geggjað peppaðir og allt gamla gengið mætt,“ segir Magni.

Hann segist hlakka sérstaklega til að sjá hljómsveitina Land og syni aftur en Hreimur Örn, söngvari sveitarinnar, er einn besti vinur Magna. „Land og synir voru fáránlega stórir í kringum árið 2000. Þeir sprungu út '97 með einu lagi og svo dældu þeir þessu út. Þetta er hörkuband og ég hlakka mikið til að sjá þá.“

Svipaða sögu er að segja af Greifunum. „Þeir voru bara á listanum. Þetta er tékklisti. Við vissum að þeir væru að fara af stað og þá greip ég þá.“

Frá upphafi hefur Bræðslan lagt áherslu á að vera ekki hátíð fyrir einn ákveðinn hóp heldur vettvangur þar sem ólíkar kynslóðir og tónlistarstefnur mætast. „Þú komst kannski til að sjá Ásgeir. Hann er búinn, þá geturðu farið út að spjalla eða kíkt á næsta atriði. Svo kemur einhver sem var að bíða eftir Greifunum. Það er líka svolítið galdurinn,“ útskýrir Magni.

Einmitt þessi fjölbreytni hefur oft skapað óvæntustu augnablikin. „Fólk sat stundum inni og vissi ekkert hver væri að fara að spila. Svo komu Agent Fresco á svið og eftir fimm mínútur var fólk farið að segja: „Þetta er besta hljómsveit sem ég hef séð.“ Það er líka fallegt.“

„Skemmtilegasta vika ársins“

Þrátt fyrir vinsældirnar leggja skipuleggjendur áherslu á að hátíðin eigi aðeins rétt á sér svo lengi sem heimamenn vilji hana áfram. „Um leið og Borgfirðingum hættir að finnast skemmtilegt að fá tvö þúsund manns í heimsókn þá hættum við þessu. Við erum ekki að reyna að vera baggi á neinum,“ segir Magni sem er fæddur og uppalinn á staðnum.

Áhrif Bræðslunnar á samfélagið séu þó augljós. „Það er búð á Borgarfirði sem er rekin á veturna fyrir hagnaðinn á Bræðsluhelginni. Ein vika á sumrinu gerir Borgfirðingum kleift að geta keypt sér mjólk allan veturinn á staðnum.“

Þótt undirbúningurinn taki marga mánuði og vinnudagarnir á hátíðarvikunni séu langir segist hann aldrei þreytast á verkefninu. „Mér finnst þetta bara skemmtilegasta vika ársins. Þetta og jólin,” segir hann og þegar hann er spurður hverju gestir megi búast við í ár stendur svarið ekki á sér. „Ég vona svo innilega að það verði sama blíðan og vanalega og sama fólkið og allir verði glaðir. Þetta er frábært line-up, við erum öll mjög peppuð sem vinnum við þetta og ég held þetta verði bara æðislegt,“ segir Magni að lokum.

Hátíðin verður haldin laugardaginn 25. júlí og er löngu uppselt á hana. En fyrir þau sem ekki fengu miða er hægt að hlusta á tónleikana á Rás 2 og horfa á herlegheitin á Rúv 2.