Fókus

Anthony Hopkins tekur óvænta beygju á ferlinum 88 ára gamall

Mynd
Anthony Hopkins er að gefa út plötu. Mynd/Getty

Velski stórleikarinn Anthony Hopkins tón nýlega óvænta beygju á ferlinum þegar hann gaf út lag. Plata er væntanleg hjá hinum 88 ára gamla leikara.

Hopkins hefur leikið síðan árið 1960 og hefur leikið í stórmyndum á borð við The Elephant Man, Silence of the Lambs, Nixon, Amistad og The Remains of the Day. Hann hefur einnig sankað að sér verðlaunum svo sem tveimur Óskarsverðlaunum og fjórum BAFTA verðlaunum, sem og verið aðlaður af drottningu fyrir framlag sitt til leiklistar.

Flestir myndu setjast í helgan stein komnir á þennan aldur en ekki Hopkins. Þvert á móti þá fer hann ótroðnar slóðir og gefur út plötu.

Fyrsta smáskífan heitir Bracken Road og er um að ræða frumsamda klassíska tónlist. Eins og segir í umfjöllun The Daily Beast um málið þá er tónlistin innblásin af barnæsku Hopkins í Wales. Litlu götunum, engjunum, landbúnaðinum og fjöllunum. Platan ber titilinn Life Is a Dream og verður gefin út þann 21. ágúst. Tónlistin er flutt af bresku fílharmóníuhljómsveitinni og stýrt af venesúelska tónlistarstjóranum Gustavo Dudamel.

„Tónlist var mín fyrsta þrá, mín fyrsta ósk, ég hef verið að semja tónlist alla ævi,“ segir hinn aldni leikari og lagahöfundur. „Sum þessara verka hafa lifað með mér í áratugi og ég finn mig enn snúa aftur til þeirra. Allt mitt líf er draumur.“