Fókus

Jón Gnarr leitar að Samúel: „Þarf að eignast þetta allt“

Mynd
Jón Gnarr

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, leitar nú á náðir vina sinna með eintök af tímaritinu Samúel. Segist hann þurfa að eignast öll eintök blaðsins eftir að hafa keypt stafla af því fyrir nokkrum árum á nytjamarkaði.

„Kæru vinir. Fyrir nokkrum árum, keypti ég í nytjamarkaði Fjölsmiðjunnar á Akureyri heljarinnar stafla af hinu stórmerka og vanmetna tímariti Samúel. Ég hélt jafnvel að þetta væri allt upplagið en það er langt í frá. Og eins og oft er með gamla menn þá hefur kviknað hjá mér þörf til að eignast allt upplagið. Ég fékk þetta eintak síðast í Bókin og þeir eru með mig á skrá ef þetta dettur inn. En mig langaði líka að leita fanga víðar. Þannig að ef einhver situr á einhverjum eintökum og má missa þá tek ég glaður við. Sendið mér bara einkaskilaboð og ég kem og sæki.

Ég er líka að leita að fyrstu blöðunum, sem hétu Jónína og Jónína-Samúel. Þarf að eignast þetta allt.“

Mynd

Tímaritið Samúel kom fyrst út sumarið 1969 í ritstjórn Þórarins Jóns Magnússonar, sem ritstýrði því lengst af. Eigendur að blaðinu voru þrír og hétu Sigurður Fossan Þorleifsson sem var framkvæmdastjóri, Þórarinn og Ólafur Hauksson. Í tvö ár kom blaðið út við góðar undirtektir, en sameinaðist ungmennablaðinu Jónína. Nýja blaðið fékk heitið Samúel & Jónína og kom út í tvö og hálft ár. Samúel & Jónína hætti að koma út síðla árs 1972 og í kjölfarið hófst útgáfa Samúels á nýjan leik í febrúar 1973. Tímaritið sem til þess tíma hafði komið út í dagblaðsformi kom nú út í litprentaðri útgáfu og naut strax mikilla vinsælda, eins og segir í yfirferð Glatkistunnar.

Upplagið rauk upp úr öllu og var um tíma um fimmtán þúsund eintök, líklega fór það hæst í 17.500 eintök þegar jólablaðið kom út 1977 en því fylgdi þriggja laga Dansplata (í formi rauðrar plastþynnu) sem innihélt þrjú vinsæl popplög er hljómplötuútgáfan Steinar hafði gefið út á árinu. Það var í fyrsta sinn sem slík plata kom út hérlendis. 

Samúel kom út til ársins 1994 oftast undir ritstjórn Þórarins en einnig komu Ólafur Hauksson, Ásgeir Tómasson, Þorsteinn Eggertsson, Ómar Valdimarsson og jafnvel fleiri við sögu þess og undirtímaritsins Samson sem kom út í örfá skipti. Tónlistarumfjöllun Samúels var alltaf áberandi og einn af stóru þáttum blaðsins.