Þrátt fyrir að hafa ekki verið gift í viku gætu friðsamir hveitibrauðsdagarnir verið á enda hjá hjónunum Taylor Swift og Travis Kelce. Að minnsta kosti ef marka má frétt DailyMail þar sem segir að NFL-kappinn Kelce sé nú að fá að heyra það frá vinum sínum sem eru ekki ánægðir með brúðkaupið, hvernig það var skipulagt og hvernig það fór fram.
Hafði DailyMail áður skrifað frétt sem byggði á lýsingum ónefndra heimildarmanna sem munu hafa verið meðal gesta í brúðkaupinu og var nokkuð brugðið yfir að ein farsælasta tónlistarkona heims, Taylor Swift, hefði ekki skipulagt veglegra brúðkaup en þetta. Áfengið hafi klárast alltof snemma, langar raðir hafi myndast á hlaðborð og ekki gátu allir fengið sér sæti þar sem um 800 gestir máttu gera sér aðeins 150 sæti að góðu.
Gerði upp á milli vina og liðsfélaga
Þrátt fyrir mikinn fjölda er ljóst að það fengu ekki allir sem vildu boð í brúðkaupið. Samkvæmt DailyMail var ekki pláss fyrir alla vini NFL-kappans í Madisone Square Garden-leikjavanginum þar sem athöfnin og veislan fóru fram.
„Það fengu ekki allir í liðinu sérstakt boð,“ segir heimildarmaður við miðilinn og lýsir því að brúðahjónin hafi gert upp á milli félaga Kelce úr NFL-deildinni. Þeirra á meðal eru fyrrum NFL-leikmennirnir, og nú hlaðvarpararnir, Taylor Lewan og Will Comton. Þeir hafa opinberað að hafa ekki verið boðið í brúðkaupið, þrátt fyrir að hafa talið Kelce vera góðan vin. Comton lýsti því að honum hafi verið brugðið þegar ekkert boðskort barst honum og Lewan veltir því fyrir sér hvort brúðahjónin hafi verið að refsa honum fyrir eitthvað.
Nú hefur Harrison Butker bæst í hópinn en hann er í NFL-liðinu Chiefs ásamt Kelce og fleirum. Butker var ekki boðið en líklegt má telja að það megi rekja til stjórnmálaskoðana hans. Butker er mikill stuðningsmaður Trump og hefur opinberlega lýst sig mótfallinn hjónaböndum samkynheigðra. Eins telur hann að hlutverk konunnar sé að halda heimili og ala upp börn.
Ónefndur heimildarmaður DailyMail, sem mun vera leikmaður Chiefs, segir í skjóli nafnleyndar að það sé vissulega skiljanlegt að Butker hafi ekki fengið boð. Hins vegar þurfi að hafa það í huga að þó að leikmenn Chiefs spili sem eitt lið þá er það samsett ólíkum einstaklingum með ólíkar skoðanir.
„Nú ganga skilaboð milli liðsmanna og sumum sem eru nánir Harrison finnst hann hafa verið snuðaður. Hugmyndin var að það ætti að vera opið boð til allra í liðinu en svo fékk hver og einn leikmaður sérstakt boð. Hefði Harrison viljað mæta hefði hann líklega getað það. Þeir eru ekki nánir, svo hann hefði reyndar ekki mætt jafnvel þó að honum hefði verið boðið.“
Ætlar að vera stærri manneskjan
Heimildarmaðurinn segir samfélag leikmanna Chiefs nú loga í slúðri. Liðsmenn eru á leið í þjálfunarbúðir eftir fáeinar vikur og velta nú fyrir sér hvort andinn í hópnum verði súr eftir þetta allt saman.
Annar leikmaður, sem stígur líka fram í skjóli nafnleyndar, tekur fram að leikmenn Chiefs séu fjölmargir. Þeir eigi í samskiptum í mörgum mismunandi hópum á samskiptamiðlum. Þar hafi einkum verið rætt um brúðkaupið í hópum þar sem Travis er ekki með. Reiknar heimildarmaðurinn með því að tæplega helmingur liðsins hafi mætt í brúðkaupið. Vissulega sé svona búningsklefaandi í þessum spjallhópum en flestir óski brúðarhjónunum hamingju, en mörgum hafi þó fundist það skrítið að Butker hafi ekki verið boðið.
Áðurnefndur Lewan sagði í hlaðvarpi sínu á þriðjudaginn að hann og Kelce væru áfram vinir.
„Við erum gaurar. Ég hef þekkt þig í rúmlega áratug. Við skiptumst á skilaboðum og hringjum hvor í annan. Ég ætla að vera stærri manneskjan hérna en ég velti þó fyrir mér gaur, ég hlýt að vera að gera eitthvað rangt í þessum vinskap. Greinilega eitthvað rangt. Það er greinilega eitthvað í gangi sem ég hef ekki tekið eftir.“