Það er algengt að íslensk pör noti gervigreind sem sambandsráðgjafa, þá er dæmi um að gervigreind hafi sagt manni að loka á öll samskipti við foreldra hans. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun, að gervigreindin sé gagnlegt hjálpartæki.
„Það er ekkert rangt við það að nota gervigreind til að hjálpa sér en það er alrangt að nota gervigreind til að þykjast vera einhver annar en þú ert,“ sagði hann. Tók hann sem dæmi um skilaboð til maka, það væri í lagi að nota gervigreindina til að lesa yfir eða koma með ábendingu um orðaval en það væri gott ef makinn fengi skilaboð sem væru alfarið skrifuð af gervigreindinni. „Það endar ekki endilega vel.“
Gervigreindin sagði að loka á samskiptin við foreldrana
Það væri sambærilegt því að gefa makanum gerviblóm. Algengt sé að gervigreindin sé notuð til sambandsráðgjafar hér á landi.
„Þetta er ekki einu sinni óalgengt, mér finnst það frekar algengt,“ segir Theodór.
„Nýjasta sem kemur upp í huga minn var þegar einstaklingur kom til mín og sagði að gervigreindin hefði sagt honum að loka á öll samskipti við foreldra hans. Ég sagði Ok, það er alveg rosaleg ákvörðun. Auðvitað kemur næsta spurning, hefur gervigreindin hitt foreldra þína? Eða er gervigreindin bara að túlka upplýsingar sem þú hefur sagt gervigreindinni, sem verður þá þín hlið á sögunni sem er auðvitað alveg hárrétt hlið, en ekki öll sagan.“
Getur verið skaðlegt
Þá notar fólk gervigreindina til að ræða um samskiptin við makann.
„Þannig speglast þetta oft inn, „gervigreindin sagði mér að maðurinn minn væri ekki ekta“, eða „maðurinn minn er ekki að meina það sem hann er að segja“. Gervigreindin túlkar það sem þú segir en gervigreindin er alltaf að láta þér líka vel við sig, þannig að hún er ekki besti spegill í heimi.“
Theodór segir að slík notkun á gervigreind geti verið skaðleg. „Þetta verður skaðlegt ef að gervigreindin er sá sem býr til þínar skoðanir og tilfinningar. Við verðum að muna að í ástarsamböndum þá snýst þetta um berskjöldun, áreiðanleika, heiðarleika.“