Fókus

Zendaya lenti í miklu basli á Íslandi – „Munnurinn á mér hreyfðist ekki“

Mynd
Zendaya lenti í vandræðum við tökur á Íslandi.

 

Leikkonan Zendaya lýsir því að hafa lent í basli með að leika í atriði fyrir kvikmyndina The Odyssey sem tekið var upp á Íslandi. Það var svo kalt að hún gat bókstaflega ekki talað.

Eins og segir í frétt kvikmyndamiðilsins Cinema Express þá lenti hin 29 ára Zendaya í vandræðum við tökur á stórmyndinni The Odyssey. En hún leikur þar sjálfa Pallas Aþenu í myndinni sem fjallar um Ódiseifskviðu Hómers.

Lýsir Zendaya því að hafa ekki geta hreyft munninn vegna kulda við tökur á myndinni.

„Ég var með línurnar mínar og vildi hafa þær alveg réttar,“ segir leikkonan. „Það var sérstaklega kalt. Þetta var á Íslandi. Munnurinn á mér var frosinn. Það kom ekkert út úr honum. Munurinn á mér hreyfðist ekki.“

Sagði hún þetta hafa verið virkilega vandræðalegt. Þegar hún hafi loks komið upp orði hafi það verið óskiljanlegt blaður.