Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með fréttum af fræga fólkinu að tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-leikmaðurinn Travis Kelce giftu sig 3. júlí í Madison Square Garden í New York.
Gestum, sem voru um 1000 talsins, og starfsfólki var stranglega bannað að mæta með síma og taka myndir til birtingar og mikil öryggisgæsla var á staðnum. Upplýsingar um brúðkaupið eru þó að birtast á vefsíðum vestanhafs. Í veislunni var meðal annars boðið upp á hlutaveltu þar sem gestir gátu unnið dýra vinninga.
Jackie Tranquill, eiginkona Drue Tranquill, leikmanns og félaga Kelce í Kansas City Chiefs, deildi myndum á Instagram eftir helgina. Á einni þeirra má sjá hana halda á happdrættismiða með dýra Chanel-handtösku í bakgrunni.
Um er að ræða litla Chanel 25 handtösku, sem samkvæmt vefsíðu Chanel kostar 6.700 dollara eða um 845 þúsund krónur.
„Frelsi, vinir og fótbolti,“ skrifaði Tranquill við færsluna, sem innihélt einnig myndir af fjólubláum blómakjól hennar sem hún klæddist í brúðkaupinu, mat og hátíðahöldum í tilefni af fjórða júlí.
Hún bætti við „til hamingju nýgiftu hjónin“ og „Til hamingju með 250 ára afmælið, Bandaríkin og auðvitað, áfram Bandaríkin! HVÍLÍK HELGI, HVÍLÍKUR TÍMI TIL AÐ VERA Á LÍFI!.“
Kanadíska söngkonan Avril Lavigne mun einnig hafa unnið Chanel-tösku í brúðkaupsveislunni og einnig var möguleiki á að vinna Chevrolet-bíl frá árinu 1970.