Fókus

Guðrún Sóley og Bjarni Pétur nýtt par

Mynd

Blaðamenn á RÚV, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson, eru nýtt par. Vísir greindi frá.

Guðrún Sóley stýrir Menningunni ásamt Bergsteini Sigurðssyni en hún hefur starfað á RÚV frá árinu 2012. Bjarni hefur starfað á RÚV frá árinu 2013 og stýrir Heimskviðum á Rás 1 með Birtu Björnsdóttur. Hann á tvo syni frá fyrra sambandi.

Parið á mörg sameiginleg áhugamál eins og bókalestur, leikhús og gönguferðir.

Í gær birti Bjarni myndband af Guðrúnu á náttúrutónleikum Mugison á Básum í Þórsmörk og myndir af henni með sonum hans í fjallgöngu.