Brúðkaup tónlistarkonunnar Taylor Swift og NFL-kappans Travis Kelce, fór fram á föstudaginn og höfðu margir beðið þess með eftirvæntingu enda hefur tónlistarkonan árum saman sungið um raunir sínar í ástarmálum og draum sinn um að ganga í hjónaband. Flestir töldu að brúðkaupið yrði gífurlega íburðarmikið og engu til sparað en raunin var víst önnur ef marka má fréttir DailyMail um viðburðinn. Hefur miðillinn það eftir ónefndum brúðkaupsgesti að veislan hafi þvert á móti verið illa skipulögð, óreiðukennd og smekklaus.
„Ég bara trúði því ekki að það hafi verið hlaðborð í brúðkaupi ársins!,“ hefur miðillinn eftir einum gesti sem mun hafa verið í áfalli eftir herlegheitin.
Flokkað eftir mikilvægi
Margar þekktustu stjörnur Hollywood voru staddar í brúðkaupinu og segir einn gestanna að það hafi verið hálf óraunverulegt að brúðarhjónin hafi gert öllum þessum frægu nöfnum að standa í röð til að sækja sér mat.
„Þetta var ekki það sem maður hefði búist við. Ég meina, Julia Roberts var þarna. Og Steven Spielberg.“
Eins munu brúðarhjónin hafa gert greinarmun á gestum með því að flokka þá eftir mikilvægi, allt frá A-flokki niður í D-flokk, og var gestum gert að mæta í veisluna í samræmi við þessa flokkun. DailyMail segir að ofurfyrirsætan Cara Delevinge hafi endað í D-flokki og því þurft að vera með þeim fyrstu til að mæta, um þremur klukkustundum áður en athöfnin hófst.
Því næst komu B-gestir en meðal þeirra voru leikarinn Bradley Cooper og fjölmiðlamaðurinn Graham Norton. Mikilvægustu gestirnir fengu að mæta rétt fyrir athöfnina.
„Það kom á óvart hversu mikil óreiða var þarna inni. Fólk mætti í hollum og sumir þurftu að bíða klukkustundum saman með ekkert fyrir stafni. Kokteilar voru ekki bornir fram fyrr en um klukkan 16. Fólk var bókstaflega stefnulaust tímunum saman. Ef þú varst meðal þeirra sem þurftu að mæta klukkan 14:30 þá gastu ekki einu sinni stytt tímann með farsímanum. Þú þurftir bara að standa eins og einhvers konar útigangsmanneskja og velta því fyrir þér hvers vegna þú varst þvingaður til að mæta svona snemma.“
Allir gestir þurftu að afhenda farsíma sína við komuna í Madison Square Garden þar sem athöfnin og veislan fóru fram og að sögn gesta mynduðust töluverðar biðraðir í lok kvöldsins þegar gestir vitjuðu síma sinna.
Ljótar skreytingar földu ekkert
Sumir gestanna hafa lýst því opinberlega að íþróttasalnum hafi verið umbreytt í einhvers konar ævintýragarð með skreytingum svo að ekki væri að sjá að þarna væri um íþróttavöll að ræða, heimildarmaður DailyMail segir þó að raunin hafi verið önnur.
„Þegar maður kom inn sá maður að eitthvað af blómum, vafningsplöntum og blómsveigum hafði verið vafið svo illa um bekkina að það náði ekki að fela plastsætin á leikvanginum. Þetta var allt frekar hræðilega og subbulega gert. Þau reyndu að fela að þetta væri brúðkaup á íþróttaleikvangi en það mistókst. Það var líka fullt af risastórum gervitrjám úr plasti og það kom bara furðulega út.“
Það kom svo gestum á óvart að meðal skemmtiatriða var búið að koma upp leikjasal á leikvanginum þar sem frægum gestum bauðst að vinna til verðlauna með því að spila leiki á borð við mini-golf, kúluspil og hringjakast. Vinningar voru lúxusvarningur á borð við handtöskur frá þekktum tískuhúsum, úr og fornbíll.
Herlegheitin munu hafa kostað brúðahjónin 20 milljónir dala, eða um 2,5 milljarða króna. Athafnastjóri var leikarinn Adam Sandler og brúðahjónin klæddust fötum frá tískuhúsinu Christian Dior.
800 gestir en bara 150 sæti
Að sögn gesta tók athöfnin óralangan tíma. Brúðarhjónin lásu sjálf upp heit sín og tók það hvort fyrir sig um 20 mínútur. Það hefði svo sem ekki verið það slæmt ef það hefðu verið sæti fyrir alla 800 gestina, en það var ekki svo. Aðeins voru um 150 sæti svo flestir þurftu að standa.
„Fólk reyndi að taka frá sæti með því að setja yfirhafnir yfir þau, en starfsfólk rak þau úr sætunum sem voru frátekin fyrir nánustu aðstandendur.“
Einn heimildarmaður sagði veisluna hafa verið dásamlega en það hefði þó skyggt á gleðskapinn að kampavínið kláraðist frekar snemma.
„Sumum var líka brugðið yfir matnum. Hann var ekki góður og var borinn fram sem hlaðborð og þurfti fólk að bíða lengi í röð ef það vildi borða“
Munu sumir hafa upplifað sig sem áhorfendur að brúðkaupi Taylor Swift frekar en gesti sem boðið var að gleðjast með brúðarhjónunum.
Þar með hafi skreytingarnar verið púkalegar, maturinn óspennandi, ekki nóg af sætum, of lítið af áfengi og langar biðraðir sem einkenndu brúðkaup ársins.